Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Large Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Bank |
Intresserad av bolagets nyckeltal?
Analysera bolaget i Börsdata!
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 11,6% á fjórða ársfjórðungi 2025 og 14,9% á árinu 2025. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 12. febrúar kl. 8:30
Lykiltölur á fjórða ársfjórðungi 2025
- Hagnaður sem tilheyrir hluthöfum Arion banka var 6,2 ma.kr. á fjórðungnum, samanborið við 8,3 ma.kr. á 4F 2024
- Arðsemi eiginfjár sem tilheyrir hluthöfum Arion banka var 11,6%, samanborið við 16,4% á 4F 2024
- Hagnaður á hlut var 4,50 krónur, samanborið við 6,01 krónu á 4F 2024
- Vaxtamunur á vaxtaberandi eignir var 2,9%, sami og á 4F 2024
- Hreinar þjónustutekjur námu 4,1 ma.kr., líkt og á 4F 2024
- Rekstur Varðar skilaði 1,1 ma.kr. hagnaði, samanborið við 1,7 ma.kr. á 4F 2024
- Kjarnatekjur, þ.e. hreinar vaxta-, þóknana- og tryggingatekjur (án rekstrarkostnaðar tryggingastarfseminnar), jukust um 7,3% í samanburði við 4F 2024
- Rekstrarkostnaður jókst um 1,8%, sem samsvarar 157 m.kr., í samanburði við 4F 2024
- Virkt skatthlutfall var 22,6% á fjórðungnum
- Heildarkostnaður sem hlutfall af kjarnatekjum var 54,9%, samanborið við 57,5% á 4F 2024
- Kostnaðarhlutfall var 46,0%, í samanburði við 48,0% á 4F 2024
- Efnahagsreikningur bankans stækkaði um 1,1% á fjórðungnum
- Lán til viðskiptavina jukust um 27,3 ma.kr. eða 2,1% á fjórðungnum, einkum lán til fyrirtækja
Lykiltölur fyrir árið 2025
- Hagnaður sem tilheyrir hluthöfum Arion banka var 30,6 ma.kr. á árinu 2025, samanborið við 26,1 ma.kr. 2024
- Arðsemi eiginfjár sem tilheyrir hluthöfum Arion banka var 14,9%, samanborið við 13,2% 2024
- Hagnaður á hlut var 22,05 krónur, samanborið við 18,31 2024
- Hreinn vaxtamunur var 3,2%, samanborið við 3,1% 2024
- Hreinar þjónustutekjur námu 17,1 ma.kr. í samanburði við 15,4 ma.kr. 2024
- Aðrar rekstrartekjur voru 5,5 ma.kr. og eru aðallega tilkomnar vegna þróunareigna
- Rekstur Varðar skilaði 2,0 ma.kr. hagnaði, samanborið við 3,7 ma.kr. 2024
- Kjarnatekjur hækka um 12,3%, samanborið við 2024
- Rekstrarkostnaður hefur staðið nokkuð í stað á milli ára
- Virkt skatthlutfall var hátt eða 27,7%, einkum vegna slakrar ávöxtunar hlutabréfaeignar
- Heildarkostnaður sem hlutfall af kjarnatekjum var 42,3%, samanborið við 47,2% 2024
- Kostnaðarhlutfall var 36,0%, samanborið við 42,6% 2024
- Efnahagsreikningur bankans hefur stækkað um 8,5% frá árslokum 2024
- Eiginfjárhlutfall bankans (CAR hlutfall) var 22,5% og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 var 18,4% í lok desember. Hlutföllin taka tillit til væntrar arðgreiðslu, sem nemur 50% af hagnaði og 5 ma.kr. endurkaupa eigin hlutabréfa sem samþykkt var af stjórn bankans 2025 og Fjármálaeftirlitinu í janúar 2026
- Stjórn bankans leggur til arðgreiðslu sem nemur 11,5 krónum á hlut eða sem jafngildir um 15,3 mö.kr., að teknu tilliti til eigin bréfa bankans
- Í tilefni af fyrirhuguðum arðgreiðslum hafa Arion banki hf. og Kvika banki hf. undirritað viðauka við áformabréf um samruna félaganna frá því í júlí 2025. Í viðaukanum er ráðgert að skiptihlutföll í samrunanum verði aðlöguð til samræmis við arðgreiðslurnar þannig að efnahagslegar forsendur samrunans, eins og þær lágu til grundvallar við undirritun áformabréfsins, raskist ekki.
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka
„Starfsemi Arion samstæðunnar gekk vel á árinu og var arðsemi eiginfjár umfram markmið. Tekjur af kjarnastarfsemi bankans voru í takt við væntingar og sem fyrr er góð afkoma drifin áfram af fjölbreytni þeirrar þjónustu sem við bjóðum viðskiptavinum. Eiginfjárhlutföll og lausafjárhlutföll eru vel umfram kröfur eftirlitsaðila og lögbundin lágmörk. Stjórn Arion mun gera það að tillögu sinni á aðalfundi þann 11. mars að greiddur verði arður sem nemur 11,5 krónum á hlut, sem samsvarar um 15 millarða arðgreiðslu.
Við höfum á undanförnum árum lagt áherslu á kerfisbreytingar á íslenskum fjármálamarkaði. Að styrkja þurfi kerfið og auka skilvirkni þess, hluthöfum og viðskiptavinum til góða. Með það að markmiði sóttist Arion eftir samrunaviðræðum við Kviku, fjórða stærsta banka landsins. Stjórnir félaganna samþykktu um mitt ár að ganga til samrunaviðræðna og standa nú yfir forviðræður við Samkeppniseftirlitið. Verði niðurstaða þeirra jákvæð þá verður formlegt erindi sent eftirlitinu.
Hátt vaxtastig og þrálát verðbólga settu svip á árið og drógu úr eftirspurn einstaklinga eftir lánsfé. Ekki bætti dómur Hæstaréttar í október úr skák, þar sem vaxtabreytingarskilmáli óverðtryggðs láns Íslandsbanka var dæmdur ólögmætur að hluta. Í kjölfarið skertu margir lánveitendur, Arion banki þar á meðal, íbúðalánaframboð sitt. Í desember dæmdi Hæstiréttur hins vegar í máli gegn Arion banka þar sem vaxtabreytingarskilmáli verðtryggðs íbúðaláns var dæmdur lögmætur.
Þrátt fyrir hátt vaxtastig var nokkur þróttur í íslensku hagkerfi og eftirspurn fyrirtækja eftir fjármögnun umtalsverð. Lán okkar til fyrirtækja jukust á árinu um 90 milljarða króna sem er með því mesta sem við höfum séð á einu ári. Það var einnig ánægjulegt þegar Gallup spurði forsvarsfólk fyrirtækja undir lok árs hvaða banki væri í fararbroddi hér á landi, en flestir svöruðu að það væri Arion banki, nokkuð sem við erum afar stolt af.
Tímamót urðu þegar við kynntum til leiks nýtt fríðindakerfi Arion samstæðunnar, Arion fríðindi. Nú geta viðskiptavinir Arion banka, Varðar og Stefnis sem og sjóðfélagar Frjálsa séð með myndrænum og skýrum hætti í Arion appinu hvaða fríðinda þeir njóta og hvernig hægt er að auka fríðindin. Í tengslum við kerfið kynntum við nýjan innlánareikning sem hefur bestu óbundu vextina sem við bjóðum og átti hann sinn þátt í góðum vexti innlána á árinu sem hefur haldið áfram inn í nýtt ár.
Stefnir gekk á undan með góðu fordæmi og lækkaði þóknanir vegna sjóðaviðskipta og felldi niður gengismun og lágmarksupphæðir við kaup í sjóðum. Að auki, í samstarfi við nokkur byggingafélög, kynnti félagði nýtt sameignaraform til að auðvelda kaup á íbúðarhúsnæði.
Langtímaátaksverkefnið Konur fjárfestum hefur nú staðið í tvö ár og hafa átta þúsund konur sótt um 100 fræðsluviðburði um land allt. Það er einstaklega ánægjulegt að við sjáum áþreifanlegan árangur þar sem hlutdeild kvenna í sparnaði og áskriftum í sjóðum Stefnis og heildareign á vörslusöfnum Arion hefur vaxið umtalsvert hraðar en hjá körlum á þessum tveimur árum.
Undanfarin ár höfum við unnið að þróun tveggja stórra byggingarsvæða á höfuðborgarsvæðinu í góðri samvinnu við sveitarfélögin sem þau tilheyra. Hefur markmiðið verið að upp rísi eftirsóknarverð hverfi sem styrkja nærumhverfið með góðri tengingu við aðliggjandi náttúru. Annað þessara verkefna kláraðist á árinu, Arnarlandið í Garðabæ, og nú er deiliskipulag fyrir fyrsta áfanga Blikastaðalandsins í samráðsferli. Við færumst því nær því að uppbygging geti hafist á Blikastaðalandi, einu stærsta óbyggða landsvæði höfuðborgarsvæðisins.“
Fundur / vefstreymi fyrir markaðsaðila 12. febrúar kl. 8:30
Fjárfestafundur fyrir markaðsaðila verður fimmtudaginn 12. febrúar klukkan 8:30 í Borgartúni 19 þar sem Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka og Eggert Teitsson, aðstoðarframkvæmdarstjóri fjármálasviðs, munu kynna afkomu bankans og Erna Björg Sverrisdóttir aðalhagfræðingur Arion banka mun fara yfir stöðu efnahagslífsins. Fundurinn fer fram á ensku og verður einnig streymt beint.
Hægt verður að nálgast streymið á Lumiconnect og á fjárfestatengslavef bankans.
Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur í gegnum spjallþráð á sömu síðu. Spurningum verður svarað að loknum kynningum.
Fjárhagsdagatal
Fjárhagsdagatal Arion banka er aðgengilegt á heimasíðu bankans.