Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Large Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Bank |
Intresserad av bolagets nyckeltal?
Analysera bolaget i Börsdata!
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Arion banki birtir uppgjör fjórða ársfjórðungs og ársuppgjör 2025 miðvikudaginn 11. febrúar, eftir lokun markaða.
Fundur/ vefstreymi fyrir markaðsaðila 12. febrúar kl. 8:30
Fjárfestafundur fyrir markaðsaðila verður fimmtudaginn 12. febrúar klukkan 8:30 í Borgartúni 19. Á fundinum munu Benedikt Gíslason, bankastjóri, og Eggert Teitsson, aðstoðarframkvæmdastjóri fjármálasviðs, kynna afkomuna og Erna Björg Sverrisdóttir aðalhagfræðingur mun fara yfir stöðu efnahagslífsins. Fundurinn fer fram á ensku og verður streymt beint.
Hægt verður að nálgast streymið á Lumiconnect og á fjárfestatengslavef bankans.
Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur í gegnum spjallþráð á sömu síðu. Spurningum verður svarað að loknum kynningum.