Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Large Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Bank |
Intresserad av bolagets nyckeltal?
Analysera bolaget i Börsdata!
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Aðalfundur Arion banka hf. verður haldinn í höfuðstöðvum bankans að Borgartúni 19, 105 Reykjavík, þann 11. mars 2026, kl. 16:00. Einnig verður gefinn kostur á rafrænni þátttöku. Fundurinn fer fram á íslensku, en boðið verður upp á túlkaþjónustu á ensku. Tímafrestur hluthafa til að skrá sig á fundinn rennur út kl. 16:00 þann 10. mars 2026. Mikilvæga tímafresti fyrir eigendur SDR heimildarskírteina ásamt nánari upplýsingum og leiðbeiningum er að finna á vefsíðu bankans, www.arionbanki.is/gm.
Tilnefningarnefnd Arion banka gegnir ráðgefandi hlutverki þegar kemur að kjöri til stjórnar bankans. Á þeim hluthafafundum þar sem kjör stjórnarmanna er á dagskrá leggur nefndin fram rökstuddar tillögur varðandi þá frambjóðendur sem hún telur best til þess fallna að taka sæti í stjórn bankans. Nánari upplýsingar um hlutverk tilnefningarnefndar og starfsreglur nefndarinnar má finna á vef Arion banka.
Eftirtaldir aðilar hafa tilkynnt um framboð til stjórnar Arion banka:
- Gunnar Sturluson
- Kristín Pétursdóttir
- Paul Horner
- Steinunn Kristín Þórðardóttir
- Tómas Már Sigurðsson
Tilnefningarnefnd leggur til að eftirfarandi aðilar verði kjörnir í stjórn bankans:
- Gunnar Sturluson
- Kristín Pétursdóttir
- Paul Horner
- Steinunn Kristín Þórðardóttir
- Tómas Már Sigurðsson
Tilnefningarnefnd leggur jafnframt til að Paul Horner verði endurkjörinn formaður stjórnar og að Kristín Pétursdóttir verði endurkjörin varaformaður.
Þá leggur nefndin til að eftirfarandi aðilar verði kjörnir í varastjórn bankans:
- Einar Hugi Bjarnason
- Sigurbjörg Ólafsdóttir
Skýrsla tilnefningarnefndar og upplýsingar um frambjóðendur er meðfylgjandi.
Athugið að störf tilnefningarnefndar og skilafrestur umsókna til hennar takmarka ekki rétt frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar bankans áður en almennur framboðsfrestur rennur út, sem er tveimur vikum fyrir aðalfund bankans, þ.e. klukkan 16:00 þann 25. febrúar 2026.
Tilnefningarnefnd hefur einnig lagt til að kosningu stjórnar bankans verði þannig háttað að aðalstjórn verði skipuð fimm einstaklingum og varastjórn tveimur, lagt fram tillögu um laun og aðrar þóknanir stjórnarmanna. Þær tillögur eru einnig birtar með tillögum fyrir aðalfund Arion banka hf.
Nánar er fjallað um framangreindar tillögur í skýrslu tilnefningarnefndar.