Eimskip gerir samning um viðskiptavakt við Landsbankann
Tilgangur samningsins er að efla viðskipti með hlutabréf Eimskip í því skyni að markaðsverð skapist á hlutabréfum og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti.
Sem viðskiptavaki mun Landsbankinn setja daglega fram í viðskiptakerfi Nasdaq Iceland kaup- og sölutilboð í hlutabréf Eimskips, að lágmarki ISK 8.000.000 að markaðsvirði. Tilboð skulu endurnýjuð eins fljótt og unnt er, þó ávallt innan 10 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu. Hámarksmagn sem viðskiptavaki er skuldbundinn til að kaupa eða selja á hverjum degi er ISK 16.000.000 að nettó markaðsvirði sem reiknast sem mismunur á þeim kaup- og sölutilboðum viðskiptavakans sem gengið er að.
Magnvegið hámarksverðbil milli kaup- og sölutilboða ákvarðast af 10 daga flökti verðs hlutabréfa Eimskips. Ef 10 daga flökt er undir 30% er magnvegið verðbil 2,0% en annars 4,0%. Þá er markmið aðila, en ekki skylda, að kaup- og sölutilboðum sé þrepaskipt þannig að hluti tilboðsbókar sé á þrengra verðbili en magnvegið verðbil gefur til kynna og hluti á víðara verðbili þannig að ofangreindu magnvegnu verðbili sé náð.
Samningurinn tekur mið af gildandi reglum og skilyrðum um viðskiptavakt á Nasdaq Iceland.
Viðskiptavakt samkvæmt samningnum hefst þann 20. júlí 2026. Jafnframt lýkur samningi Eimskips um viðskiptavakt við Íslandsbanka hf., en samningur félagsins um viðskiptavakt við Arion banka helst óbreyttur.
Samningurinn er ótímabundinn og getur hvor aðili sagt honum upp með 14 daga fyrirvara.