Niðurstöður aðalfundur A/F Heim slhf.
2022-05-12 16:38:00
Aðalfundur A/F Heim slhf. árið 2022
Þann 12. maí 2022 var haldinn aðalfundur A/F HEIM slhf. að Katrínartúni 2, 105 Reykjavík.
- Á fundinum var ársreikningur félagsins samþykktur.
- Samþykkt var að ráðstafa hagnaði til hækkunar á eigin fé. Samkvæmt reglum félagsins er ekki heimilt að greiða arð nema eigendur skuldabréfa sem félagið hefur gefið út, sem eiga samanlagt a.m.k. 90% af kröfum skuldabréfanna, hafi samþykkt slíkt.
- Samþykkt var að Deloitte ehf. verði áfram endurskoðunarfélag félagsins og fyrir þess hönd Gunnar Þorvarðarson, löggiltur endurskoðandi.
- Samþykkt var að þóknun endurskoðanda yrði samkvæmt samþykktum reikningum.