Niðurstöður aðalfundur A/F HEIM slhf.
2023-06-27 15:55:00
Aðalfundur A/F HEIM slhf. árið 2023
Þann 27. júní 2023 var haldinn aðalfundur A/F HEIM slhf. að Katrínartúni 2, 105 Reykjavík.
- Á fundinum var ársreikningur félagsins fyrir árið 2022 samþykktur.
- Samþykkt var að ráðstafa hagnaði til hækkunar á eigin fé. Samkvæmt reglum félagsins er ekki heimilt að greiða arð nema eigendur skuldabréfa sem félagið hefur gefið út, sem eiga samanlagt a.m.k. 90% af kröfum skuldabréfanna, hafi samþykkt slíkt.
- Samþykkt var að Deloitte ehf. verði áfram endurskoðunarfélag félagsins og fyrir þess hönd Gunnar Þorvarðarson, löggiltur endurskoðandi.
- Samþykkt var að þóknun endurskoðanda yrði samkvæmt samþykktum reikningum.
- Samkvæmt 1. mgr. 4. gr. samþykkta félagsins, gegnir ábyrgðarðili hlutverki stjórnar félagsins. Ábyrgðaraðili A/F HEIM slhf. er Viti fjárfestingafélag ehf. Samþykkt var að stjórn félagsins yrði óbreytt.