Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 36 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 1.073.000 eigin hluti að kaupverði 37.340.300 kr., í samræmi við eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
| 31.8.2026 | 10:29 | 248.000 | 35,10 | 8.704.800 |
| 1.9.2026 | 09:41 | 215.000 | 35,10 | 7.546.500 |
| 2.9.2026 | 09:41 | 220.000 | 34,70 | 7.634.000 |
| 3.9.2026 | 14:05 | 190.000 | 34,50 | 6.555.000 |
| 4.9.2026 | 09:59 | 200.000 | 34,50 | 6.900.000 |
| Samtals | 1.073.000 | 37.340.300 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 28. ágúst 2026. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en til lok árs 2026.
Heimar áttu 27.802.000 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 28.875.000 hluti, eða um 1,47% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð keyptra hluta á árinu 2026 1.037.125.900 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – [email protected]