Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 46 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 700.000 eigin hluti að kaupverði 23.870.000 kr., í samræmi við eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
| 09.11.2026 | 13:20 | 350.000 | 34,20 | 11.970.000 |
| 11.11.2026 | 10:56 | 350.000 | 34,00 | 11.900.000 |
| Samtals | 700.000 | 23.870.000 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 28. ágúst 2026. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en til lok árs 2026.
Heimar áttu 40.180.000 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 40.880.000 hluti, eða um 2,08% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð keyptra hluta á árinu 2026 1.440.312.660 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – [email protected]