Heimar hf.: Stækkun á skuldabréfaflokkunum HEIMAR50 GB
Heimar hf. („Heimar“ eða „félagið“) hafa í dag lokið við stækkun skuldabréfaflokknum HEIMAR50 GB.
HEIMAR50 GB er grænn, verðtryggður skuldabréfaflokkur sem er veðtryggður með almennu tryggingarfyrirkomulagi félagsins. Seld voru skuldabréf að nafnverði 3.000 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,92% og verður heildarstærð flokksins því í kjölfar stækkunar að nafnverði 21.720 m.kr.
Áætlaður uppgjörsdagur viðskiptanna er 27. nóvember 2026 og verður í kjölfarið óskað eftir því að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq.
ACRO verðbréf hf. hafði umsjón með viðskiptunum og stækkun skuldabréfaflokkana.
Nánari upplýsingar veitir:
Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – [email protected]