Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Large Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Storbank |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Hagnaður af rekstri nam 5,9 milljörðum króna á fjórða ársfjórðungi 2025 og 25,2 milljörðum króna fyrir árið í heild.
Helstu atriði í fjárhagslegri afkomu fjórða ársfjórðungs 2025 (4F25)
- Hagnaður af rekstri nam 5,9 milljörðum króna á fjórða ársfjórðungi 2025 (4F24: 6,3 milljarðar króna). Arðsemi eigin fjár var 10,5% á ársgrundvelli (4F24: 11,2%).
- Hreinar vaxtatekjur námu 12,4 milljörðum króna á fjórða ársfjórðungi 2025 og hækkuðu um 1.516 milljónir króna á 4F25 samanborið við 4F24.
- Vaxtamunur var 2,9% á fjórða ársfjórðungi 2025, samanborið við 2,7% á 4F24.
- Hreinar þóknanatekjur á fjórða ársfjórðungi 2025 voru 4,2 milljarðar króna 2025, sem er aukning um 16% samanborið við 4F25.
- Hreinar fjármagnstekjur voru 404 milljónir króna á fjórða ársfjórðungi 2025, samanborið við fjármagnstekjur að fjárhæð 169 milljónir króna á 4F24.
- Aðrar rekstrartekjur námu 447 milljónum króna á fjórða ársfjórðungi 2025, samanborið við 777 milljónir króna á 4F24.
- Stjórnunarkostnaður nam 8,3 milljörðum króna á fjórða ársfjórðungi 2025, en nam 7,1 milljarði króna á 4F24.
- Kostnaðarhlutfall bankans var 43,5 % á fjórða ársfjórðungi 2025 og undanskilur launakostnað að fjárhæð 804 milljónir króna vegna snemmbúinna starfsloka og tekjur að fjárhæð 237 milljónir króna innan hreinna vaxtatekna (550 milljónir króna vegna bakfærslu á skuldbindingu sem var gjaldfærð í 3F25 vegna lögfræðilegra mála og gjaldfærslu að fjárhæð 313 milljónir króna vegna leiðréttingar frá fyrri árum). Kostnaðarhlutfallið var 45,7% á 4F24.
- Virðisrýrnun fjáreigna neikvæð um 1.087 milljónir króna á fjórða ársfjórðungi 2025 samanborið við jákvæða virðisbreytingu sem nam 352 milljónum króna á 4F24. Áhættukostnaður útlána (e. Cost of risk) var 32 punktar á ársgrundvelli á fjórða ársfjórðungi 2025 samanborið við -11 punkta á 4F24.
- Útlán til viðskiptavina jukust um 33,9 milljarða króna á fjórða ársfjórðungi 2025 frá þriðja ársfjórðungi 2025 og voru 1.367 milljarðar króna í lok fjórða ársfjórðungs 2025.
- Innlán frá viðskiptavinum drógust saman um 4,0% milli loka þriðja og fjórða ársfjórðungs 2025 og námu 969 milljörðum króna í lok 4F25.
- Eigið fé nam 225,4 milljörðum króna í lok fjórða ársfjórðungs 2025, samanborið við 227,4 milljarða króna í lok árs 2024.
- Eiginfjárhlutfall var 24,0% í lok árs 2025, samanborið við 23,2% í lok árs 2024. Samsvarandi eiginfjárhlutfall almenns þáttar 1 (CET1) var 20,1% í lok árs 2025, hið sama og við árslok 2024. Eiginfjárhlutfall almenns þáttar 1 var 510 punktum yfir kröfum eftirlitsaðila í lok þriðja ársfjórðungs 2025, og hærra en fjárhagslegt markmið bankans sem er að vera með 100-300 punkta eiginfjár svigrúm umfram kröfur eftirlitsaðila.
- Lágmarkskrafa um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar (MREL) er 18,8% af áhættugrunni, til viðbótar við samanlagða kröfu um eiginfjárauka. Í lok fjórða ársfjórðungs 2025 var MREL hlutfall bankans 44,0%, 1.550 punktum yfir kröfum eftirlitsaðila.
Helstu atriði í fjárhagslegri afkomu Íslandsbanka árið 2025
- Hagnaður af rekstri bankans árið 2025 nam 25,2 milljörðum króna (2025: 24,2 milljarðar króna). Arðsemi eigin fjár var 11,2% (2025: 10,9%).
- Hreinar vaxtatekjur á árinu námu 52,5 milljörðum króna, sem er aukning um 11,0% frá árinu 2024.
- Hreinar þóknanatekjur námu 14,1 milljarði króna á árinu og jukust um 7,4% frá árinu 2024, þegar þær voru 13,1 milljarður króna.
- Hrein fjármagnsgjöld voru 922 milljónir króna á árinu 2025, samanborið við fjármagnsgjöld að fjárhæð 338 milljónir króna árið 2024.
- Stjórnunarkostnaður var 29,5 milljarður króna á árinu 2025, en 27,6 milljarður á árinu 2024, þegar frá er talin 470 milljón króna stjórnvaldssekt sem gjaldfærð var á öðrum ársfjórðungi 2024.
- Kostnaðarhlutfall bankans lækkaði úr 43,8% árið 2024 niður í 42,4% árið 2025. Kostnaðarhlutfall fyrir árið 2025 undanskilur launakostnað að fjárhæð 804 milljónir króna vegna snemmbúinna starfsloka og gjaldfærslu að fjárhæð 313 milljónir króna innan hreinna vaxtatekna vegna leiðréttingar frá fyrri árum. Kostnaðarhlutfallið fyrir árið 2024 undanskilur gjaldfærslu stjórnvaldssektar að fjárhæð 470 milljónir króna sem gjaldfærð var á 2F24.
- Virðisrýrnun á fjáreignum á árinu 2024 nam 681 milljón króna á árinu 2025 samanborið við jákvæða virðisbreytingu sem nam 645 milljónum króna árið 2024.
Bestun efnahagsreiknings, arðgreiðslur og útgreiðsla á umfram eigin fé
- Áform um bestun eiginfjársamsetningar bankans standa enn, að teknu tilliti til markaðsaðstæðna.
- Stjórn Íslandsbanka mun leggja til 12,6 milljarða króna arðgreiðslu við aðalfund bankans í mars. Það er í samræmi við arðgreiðslustefnu bankans um að greiða um 50% af hagnaði fyrra árs í arð til hluthafa.
- Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur veitt bankanum heimild fyrir endurkaupum á eigin hlutum fyrir allt að 15 milljarða króna að markaðsvirði. Bankinn mun tilkynna um tímasetningu og framkvæmd endurkaupa samkvæmt framangreindri heimild þegar ákvörðun um þau hefur verið tekin. Fjármálaeftirlitið hefur einnig veitt bankanum heimild til lækkunar hlutafjár sem nemur fjárhæð þeirra eigin hluta sem keyptir hafa verið á grundvelli eldri heimilda fjármálaeftirlitsins.
- Stjórn bankans mun óska eftir endurnýjaðri heimild til endurkaupa á eigin bréfum að því marki sem lög leyfa á aðalfundi bankans í mars 2026.
- CRR 3 var innleitt á Íslandi í desember 2025 og hafði það töluverð áhrif á áhættugrunn og eiginfjárhlutföll samstæðunnar. Innleiðing CRR 3 leiddi til 88 milljarða króna. (7,8%) lækkunar á áhættugrunni, sem er að mestu vegna lækkunar á útlánaáhættugrunninum. Lækkunin leiddi til hækkunar á eiginfjárhlutfalli almenns þáttar 1 úr 18,5% í 20,1%, eiginfjárhlutfall þáttar 1 hækkaði úr 20,0% í 21,7% og eiginfjárhlutfallið hækkaði úr 22,1% í 24,0%.
Uppfærð fjárhagsleg markmið til meðallangs tíma
- Bankinn hefur sett ný fjárhagsleg markmið til meðallangs tíma, þ.e. til næstu 3-4 ára, sem hér segir:
| Fyrra markmið | Uppfært markmið fyrir næstu 3-4 ár | 2025 tölur | Leiðbeinandi bil fyrir árslok 2026 | |
| Arðsemi eigin fjár | 10% | >13% | 11,2% | ~12% |
| Kostnaðarhlutfall | <45% | <43% | 42,4% | ~43% |
| Hlutafé umfram lágmarkskröfur | 1-3 prósentustig | 1-3 prósentustig | 5,1 prósentustig | 2 prósentustig |
| Arðgreiðsluhlutfall | 50% | 50% | 50% | 50% |
Lykiltölur
| 4F25 | 3F25 | 2F25 | 1F25 | 4F25 | ||
| REKSTUR | Hagnaður tímabils, m.kr. | 5.947 | 6.901 | 7.192 | 5.209 | 6.283 |
| Arðsemi eigin fjár | 10,5% | 12,2% | 13,0% | 9,4% | 11,2% | |
| Vaxtamunur (af heildareignum) | 2,9% | 3,1% | 3,3% | 3,2% | 2,7% | |
| Kostnaðarhlutfall1 | 43,5% | 38,2% | 41,0% | 47,6% | 45,7% | |
| Áhættukostnaður útlána2 | 0,32% | (0,00%) | (0,12%) | 0,00% | (0,11%) | |
| 31.12.25 | 30.9.25 | 30.6.25 | 31.3.25 | 31.12.24 | ||
| EFNAHAGUR | Útlán til viðskiptavina, m.kr. | 1.367.106 | 1.333.234 | 1.331.288 | 1.298.849 | 1.295.388 |
| Eignir samtals, m.kr. | 1.728.147 | 1.734.056 | 1.696.034 | 1.667.429 | 1.607.807 | |
| Áhættuvegnar eignir, m.kr. | 1.033.788 | 1.084.527 | 1.084.492 | 1.061.903 | 1.040.972 | |
| Innlán frá viðskiptavinum, m.kr. | 968.695 | 1.008.919 | 966.075 | 936.779 | 926.846 | |
| Útlán til viðskiptavina / innlán frá viðskiptavinum | 141% | 132% | 138% | 139% | 140% | |
| Hlutfall lána með laskað lánshæfi3 | 1,5% | 1,6% | 1,6% | 1,8% | 1,6% | |
| LAUSAFÉ | Fjármögnunarhlutfall (NSFR), allir gjaldmiðlar | 127% | 129% | 125% | 128% | 125% |
| Lausafjárþekjuhlutfall (LCR), allir gjaldmiðlar | 203% | 207% | 185% | 202% | 168% | |
| EIGIÐ FÉ | Eigið fé samtals, m.kr. | 225.359 | 226.974 | 224.725 | 217.894 | 227.355 |
| Eiginfjárhlutfall almenns þáttar 14 | 20,1% | 18,9% | 18,5% | 18,6% | 20,1% | |
| Eiginfjárhlutfall þáttar 14 | 21,7% | 19,8% | 19,4% | 19,5% | 21,0% | |
| Eiginfjárhlutfall4 | 24,0% | 21,9% | 21,5% | 21,6% | 23,2% | |
| Vogunarhlutfall4 | 12,5% | 11,9% | 12,0% | 12,1% | 13,2% | |
| MREL hlutfall5 | 44,0% | 36,8% | 36,7% | 37,8% | 33,4% |
1. Kostnaðarhlutfall fyrir 4F25 undanskilur launakostnað að fjárhæð 804 milljónir króna vegna snemmbúinna starfsloka og tekjur að fjárhæð 237 milljónir króna innan hreinna vaxtatekna (550 milljónir króna vegna bakfærslu á skuldbindingu sem var gjaldfærð í 3F25 vegna lögfræðilegra mála og gjaldfærslu að fjárhæð 313 milljónir króna vegna leiðréttingar frá fyrri árum). Kostnaðarhlutfall á þriðja ársfjórðungi undanskilur 550 milljón króna varúðarfærslu vegna dómsmáls á meðal hreinna vaxtatekna.
2. Neikvæður áhættukostnaður merkir að það hafi verið nettó tekjufærsla úr virðisrýrnunarsjóði.
3. Stig 3, útlán til viðskiptavina, vergt bókfært virði.
4. Að meðtöldum 3F25 hagnaði fyrir 30.9.25.
5. MREL hlutfallið er birt að meðtöldu almennu eiginfé þáttar 1 sem er haldið til að mæta samanlagðri kröfu um eiginfjárauka.
Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka
Ársins 2025 verður minnst fyrir margra hluta sakir. Stór og þýðingarmikill viðburður í sögu Íslandsbanka var sala ríkissjóðs á eftirstandandi eignarhlut sínum í bankanum. Útboðið gekk vonum framar, og var stækkað vegna mikillar eftirspurnar og fór fjöldi hluthafa í bankanum hæst í um 35 þúsund hluthafa strax í kjölfar útboðsins. Miklar breytingar í hluthafahópnum kallaði á aukna aðkomu fjárfesta að stjórn bankans og í upphafi nýs árs fór fram hluthafafundur þar sem ný stjórn var kjörin og Heiðar Guðjónsson kjörinn stjórnarformaður.
Afkoma Íslandsbanka á fjórða ársfjórðungi var góð og var hagnaður á tímabilinu 5,9 milljarðar króna og arðsemi eigin fjár 10,5%. Afkoma ársins í heild var því 25,2 milljarðar króna og arðsemi eigin fjár 11,2%. Bankinn náði þar með öllum fjárhagslegum markmiðum sínum á liðnu rekstrarári.
Frekari skref í átt að hagkvæmustu samsetningu eigin fjár voru tekin fyrir lok árs með vel heppnaðri útgáfu skuldabréfa sem telja til viðbótar eiginfjárþáttar 1 (AT1) í nóvember. Útgáfan var samtals 700 milljónir sænskra króna og 200 milljónir norskra króna, á hagstæðustu kjörum sem íslenskum banka hafa boðist á AT1-bréfi frá árinu 2008. Útgáfan sýnir vel fjárhagslegan styrk Íslandsbanka, en ekki síst styrk íslenska bankakerfisins í heild.
Fjölmörg tækifæri liggja í aukinni hagnýtingu gervigreindar, tækniframþróun og skerptum áherslum á framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini okkar. Framþróun í appi Íslandsbanka hefur verið afar vel tekið meðal viðskiptavina á árinu sem og nýjungum líkt og „Bílar með reynslu“ hjá Ergo sem opnaði á nýja möguleika við fjármögnun á eldri bílum. Bankinn hefur lýst sig reiðubúinn til þátttöku í uppbyggingu þarfra innviða hér á landi og þátttaka Íslandsbanka í fjármögnun á nýrri Ölfusárbrú er skýrt merki um að yfirlýsingum bankans í þeim efnum fylgi aðgerðir.
Nýtt ár felur jafnan í sér mörg tækifæri, bæði í rekstri bankans og í margvíslegum verkefnum með viðskiptavinum okkar. Við erum vel í stakk búin og tökum á móti komandi misserum staðráðin í að vera áfram hreyfiafl til góðs í íslensku samfélagi.
Afkomuefni
Ítarlegri upplýsingar um rekstur og afkomu Íslandsbanka má finna í enskri útgáfu fréttatilkynningarinnar. Íslenska útgáfan veitir aðeins yfirlit yfir helstu þætti uppgjörsins, fjárfestafund og fjárhagsdagatal. Sé misræmi á milli tilkynninga á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, gildir enska útgáfan.
Fyrirvari
Fréttatilkynning þessi gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu þessarar fréttatilkynningar. Það er á ábyrgð fjárfestis að reiða sig ekki á spár um framtíðarhorfur sem eru settar fram í þessari fréttatilkynningu þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin út. Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara.
FJÁRFESTATENGSL
Afkomufundur í vefstreymi föstudaginn 13. febrúar 2026
Íslandsbanki mun halda afkomufund í vefstreymi fyrir fjárfesta og markaðsaðila, föstudaginn 13. febrúar 2026 kl. 8.30. Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri og Ellert Hlöðversson, fjármálastjóri munu kynna afkomu og helstu atriði í rekstri bankans á fjórða ársfjórðungi 2025 og árinu í heild. Fundurinn fer fram á ensku.
Fundurinn verður aðgengilegur í gegnum hlekk á vefsvæði fjárfestatengsla á vef bankans. Upptaka verður aðgengileg á sama stað að honum loknum. Þátttaka, og möguleikinn á að senda inn skriflegar spurningar, fer fram á þessari síðu. Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn og lagt fram spurningar munnlega með því að skrá sig á þessari síðu. Að skráningu lokinni verður símanúmer og auðkenni fyrir fundinn afhent. Allar upplýsingar um fundinn má finna hér.
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Íslandsbanka: [email protected].
Fjárhagsdagatal
Stefnt er birtingu árshluta- og ársuppgjörs á eftirfarandi dagsetningum:
Árshlutauppgjör fyrsta ársfjórðungs 2026 – 7. maí 2026
Árshlutauppgjör annars ársfjórðungs 2026 – 29. júlí 2026
Árshlutauppgjör þriðja ársfjórðungs 2026 – 29. október 2026
Frekari upplýsingar um fjárhagsdagatal Íslandsbanka eru aðgengilegar á vef bankans. Dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar.
Fjárfestaefni
Allt fjárfestaefni verður birt á vefsvæði fjárfestatengsla þar sem ítarlegri upplýsingar um fjárhagsdagatal og þögul tímabil eru einnig aðgengilegar.
Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi afkomu á fjórða ársfjórðungi 2025 og á árinu 2025 sem lýst er að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.