Onsdag 29 Juli | 23:01:54 Europe / Stockholm
Est. tid*
2026-10-29 17:50 Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-07-29 17:50 Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-05-07 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-03-20 - X-dag ordinarie utdelning ISB 7.28 ISK
2026-02-12 - Bokslutskommuniké 2025
2025-10-30 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-07-31 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-05-08 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-04-01 - X-dag ordinarie utdelning ISB 6.46 ISK
2025-02-13 - Bokslutskommuniké 2024
2024-10-23 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-07-25 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-05-02 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-22 - X-dag ordinarie utdelning ISB 6.26 ISK
2024-02-09 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-26 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-27 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-04 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-17 - X-dag ordinarie utdelning ISB 6.15 ISK
2023-02-09 - Bokslutskommuniké 2022
2022-10-27 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-07-28 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-05 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-18 - X-dag ordinarie utdelning ISB 5.95 ISK
2022-03-17 - Årsstämma
2022-02-10 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-28 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-28 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-05 - Kvartalsrapport 2021-Q1
LandIsland
ListaLarge Cap Iceland
SektorFinans
IndustriStorbank
Íslandsbanki är verksamma inom finanssektorn. Idag erbjuder banken ett brett utbud av finansiella tjänster, huvudsakligen inriktat mot små- och medelstora företagskunder. Tjänsteutbudet är brett och inkluderar exempelvis kapitalförvaltning samt lånefinansiering. Utöver huvudverksamheten erbjuds diverse kringtjänster. Bolaget bedriver verksamhet runtom den isländska hemmamarknaden.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Íslandsbanki hf.: Afkoma á öðrum ársfjórðungi 2026

2026-07-29 18:10:00

Hagnaður af rekstri nam 7,1 milljarði króna á öðrum ársfjórðungi 2026. Arðsemi eigin fjár á öðrum ársfjórðungi var 13,3% á ársgrundvelli.

HELSTU ATRIÐI Í AFKOMU ÍSLANDSBANKA
Helstu atriði í fjárhagslegri afkomu annars ársfjórðungs 2026 (2F26)

  • Hagnaður af rekstri nam 7,1 milljarði króna á öðrum ársfjórðungi 2026 (2F25: 7,2 milljarðar króna). Arðsemi eigin fjár á öðrum ársfjórðungi var 13,3% á ársgrundvelli (2F25: 13,0%).
  • Hreinar vaxtatekjur námu 15,3 milljörðum króna á 2F26 og hækkuðu um 1,4 milljarða króna samanborið við 2F25.
  • Vaxtamunur var 3,4% á 2F26 samanborið við 3,3% á 2F25. 
  • Hreinar þóknanatekjur á 2F26 voru 3,3 milljarðar króna, samanborið við þóknanatekjur á 2F25 sem námu 3,6 milljörðum króna.
  • Hrein fjármagnsgjöld voru 94 milljónir króna á 2F26, samanborið við fjármagnstekjur að fjárhæð 13 milljónir króna á 2F25.
  • Stjórnunarkostnaður nam 8,1 milljarði króna á 2F26, en hann nam 7,3 milljörðum króna á 2F25.
  • Kostnaðarhlutfall bankans var 43,1%  á 2F26 samanborið við kostnaðarhlutfallið 41,0% á 2F25.
  • Virðisrýrnun fjáreigna var neikvæð um 454 milljónir króna á 2F26 samanborið við virðisrýrnun sem nam 402 milljónum króna á 2F25. Áhættukostnaður útlána (e. cost of risk) var 13 punktar á ársgrundvelli á 2F26 samanborið við -12 punkta á 2F25.
  • Útlán til viðskiptavina jukust um 14,8 milljarða króna á 2F26 og námu 1.416 milljörðum króna í lok 2F26.
  • Innlán frá viðskiptavinum jukust um 2,4% á 2F26 og námu 1.038 milljörðum króna í lok 2F26.
  • Eigið fé nam 211,1 milljarði króna í lok 2F26, samanborið við 225,4 milljörðum króna í lok árs 2025.
  • Eiginfjárhlutfall var 23,0% í lok 2F26, samanborið við 24,0% í lok árs 2025. Samsvarandi eiginfjárhlutfall almenns þáttar 1 (CET1) var 19,1% í lok 2F26, samanborið við 20,1% í lok árs 2025. Eiginfjárhlutfall almenns þáttar 1 var 385 punktum yfir kröfum eftirlitsaðila í lok 2F26, og hærra en fjárhagslegt markmið bankans sem er að hafa 100-300 punkta eiginfjár svigrúm umfram kröfur eftirlitsaðila.
  • Heildarútgreiðslugeta nemur 23,1 milljarði króna og tekur mið af óloknum endurkaupum á birtingardegi.
  • Lágmarkskrafa um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar (MREL) er 18,8% af áhættugrunni, til viðbótar við samanlagða kröfu um eiginfjárauka. MREL hlutfall bankans sem % af áhættuvegnum eignum var 28,5% að meðtöldum samanlögðum varúðarauka samstæðunnar þann 30. júní 2026. Í lok 2F26 var MREL hlutfall bankans 43,9%. Gert er ráð fyrir að ný skilaáætlun fyrir bankann verði samþykkt í október með hækkun á MREL-kröfu í 19,6%, í samræmi við nýjustu niðurstöður SREP-mats bankans.
  • Íslandsbanki keypti 57,2 milljón eigin bréf fyrir um 8,2 milljarða króna á 2F26.
  2F261F264F253F252F25
REKSTURHagnaður tímabils, m.kr.7.0697.4565.9476.9017.192
 Arðsemi eigin fjár13,3%13,6%10,5%12,2%13,0%
 Vaxtamunur (af heildareignum)3,4%3,9%2,9%3,1%3,3%
 Kostnaðarhlutfall143,1%38,5%43,5%38,2%41,0%
 Áhættukostnaður útlána20,13%0,35%0,32%(0,00%)(0,12%)
  




  30.6.2631.3.2631.12.2530.9.2530.6.25
EFNAHAGURÚtlán til viðskiptavina, m.kr.1.416.0481.401.2121.367.1061.333.2341.331.288

Eignir samtals, m.kr.1.788.3851.786.6971.728.1471.734.0561.696.034

Áhættuvegnar eignir, m.kr.1.043.7131.049.4351.033.7881.084.5271.084.492

Innlán frá viðskiptavinum, m.kr.1.038.2061.013.431968.6951.008.919966.075

Útlán til viðskiptavina / innlán frá viðskiptavinum136%138%141%132%138%

Hlutfall lána með laskað lánshæfi32,6%2,0%1,5%1,6%1,6%


     
       
LAUSAFÉFjármögnunarhlutfall (NSFR), allir gjaldmiðlar126%123%127%129%125%

Lausafjárþekjuhlutfall (LCR), allir gjaldmiðlar188%177%203%207%185%







       
EIGIÐ FÉEigið fé samtals, m.kr.211.095212.718225.359226.974224.725

Eiginfjárhlutfall almenns þáttar 1419,1%18,6%20,1%18,9%18,5%

Eiginfjárhlutfall þáttar 1420,7%20,2%21,7%19,8%19,4%

Eiginfjárhlutfall423,0%22,5%24,0%21,9%21,5%

Vogunarhlutfall411,7%11,5%12,5%11,9%12,0%

MREL hlutfall543,9%40,3%44,0%36,8%36,7%

1. Kostnaðarhlutfall fyrir 4F25 undanskilur launakostnað að fjárhæð 804 milljónir króna vegna snemmbúinna starfsloka og tekjur að fjárhæð 237 milljónir króna innan hreinna vaxtatekna (550 milljónir króna vegna bakfærslu á skuldbindingu sem var gjaldfærð í 3F25 vegna lögfræðilegra mála og gjaldfærslu að fjárhæð 313 milljónir króna vegna leiðréttingar frá fyrri árum). Kostnaðarhlutfall á þriðja ársfjórðungi undanskilur 550 milljón króna varúðarfærslu vegna dómsmáls á meðal hreinna vaxtatekna.
2. Neikvæður áhættukostnaður merkir að það hafi verið nettó tekjufærsla úr virðisrýrnunarsjóði.
3. Stig 3, útlán til viðskiptavina, vergt bókfært virði.
4. Að meðtöldum 1F26 hagnaði fyrir 31.3.26 og 3F25 hagnaði fyrir 30.9.25.
5. MREL hlutfallið er birt að meðtöldu almennu eiginfé þáttar 1 sem er haldið til að mæta samanlagðri kröfu um eiginfjárauka.

Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka:

Afkoma Íslandsbanka á öðrum ársfjórðungi var traust og í meginatriðum í samræmi við væntingar. Rekstrarhagnaður nam 7,1 milljarði króna og arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli var 13,3%. Báðar þessar lykilstærðir voru hærri en á sama tímabili í fyrra, en lítillega undir væntingum greinenda fyrir fjórðunginn. Hreinar vaxtatekjur jukust um 10% samanborið við sama fjórðung í fyrra og vaxtamunur bankans var 3,4% á fjórðungnum. Afkoma af kjarnastarfsemi sýnir að undirstöður rekstrarins eru sterkar. Óvissa í alþjóðlegu umhverfi, sveiflur á erlendum mörkuðum og minni umsvif á innlendum fjármagnsmarkaði höfðu hins vegar neikvæð áhrif á þóknanatekjur á fjórðungnum.

Rekstur bankans hefur áfram þróast í samræmi við stefnu hans. Á tímabilinu tókum við á móti fjölda nýrra viðskiptavina og eftirspurn eftir nýrri vildarþjónustu bankans hélt áfram að aukast. Jafnframt var góð virkni í skuldabréfa- og hlutabréfamiðlun. Þessar niðurstöður endurspegla styrk viðskiptasambanda bankans og breidd starfseminnar, og við hlökkum til að byggja áfram á þessum árangri á komandi misserum.

Enn ríkir nokkur óvissa um yfirlýstan ásetning stjórnvalda um endurskoðun á skattlagningu fjármálafyrirtækja þar sem engar formlegar tillögur hafa enn verið lagðar fram. Skattlagning íslenskra fjármálafyrirtækja er nú þegar hærri en hjá sambærilegum fyrirtækjum á öðrum Norðurlöndum og frekari skattahækkanir gætu dregið úr samkeppnishæfni íslenska fjármálakerfisins.

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram 22. ágúst og er eftirvænting fyrir viðburðinum mikil líkt og undanfarin ár. Mikilvægasti tilgangur hlaupsins er að styðja við söfnun til góðgerðarmála en fyrir mörg félagasamtök er þetta stærsta og mikilvægasta fjáröflun ársins. Frá árinu 2006 hafa alls safnast um 2 milljarðar króna til góðra málefna. Það verður ánægjulegt að sjá miðborg Reykjavíkur fyllast af hlaupurum á öllum aldri, hvort sem markmiðið er að bæta sinn besta tíma eða að njóta dagsins.

Afkomuefni

Ítarlegri upplýsingar um rekstur og afkomu Íslandsbanka má finna í enskri útgáfu fréttatilkynningarinnar. Íslenska útgáfan veitir aðeins yfirlit yfir helstu þætti uppgjörsins, fjárfestafund og fjárhagsdagatal. Sé misræmi á milli tilkynninga á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, gildir enska útgáfan.


Fyrirvari

Fréttatilkynning þessi gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu þessarar fréttatilkynningar. Það er á ábyrgð fjárfestis að reiða sig ekki á spár um framtíðarhorfur sem eru settar fram í þessari fréttatilkynningu þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin út. Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara.


FJÁRFESTATENGSL

Afkomufundur í vefstreymi fimmtudaginn 30. júlí 2026

Íslandsbanki mun halda afkomufund í vefstreymi fyrir fjárfesta og markaðsaðila, fimmtudaginn 30. júlí 2026 kl. 8.30. Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri og Ellert Hlöðversson, fjármálastjóri munu kynna afkomu og helstu atriði í rekstri bankans á öðrum ársfjórðungi 2026. Fundurinn fer fram á ensku.

Fundurinn verður aðgengilegur í gegnum hlekk á vefsvæði fjárfestatengsla á vef bankans. Upptaka verður aðgengileg á sama stað að honum loknum. Þátttaka, og möguleikinn á að senda inn skriflegar spurningar, fer fram á þessari síðu. Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn og lagt fram spurningar munnlega með því að skrá sig á þessari síðu. Að skráningu lokinni verður símanúmer og auðkenni fyrir fundinn afhent.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Íslandsbanka: [email protected].

Fjárhagsdagatal
Stefnt er að birtingu árshlutauppgjörs á eftirfarandi dagsetningu:

Árshlutauppgjör þriðja ársfjórðungs 2026 – 29. október 2026

 
Frekari upplýsingar um fjárhagsdagatal Íslandsbanka eru aðgengilegar á vef bankans. Dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar.

Fjárfestaefni
Allt fjárfestaefni verður birt á vefsvæði fjárfestatengsla þar sem ítarlegri upplýsingar um fjárhagsdagatal og þögul tímabil eru einnig aðgengilegar.

Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi afkomu á öðrum ársfjórðungi 2026 sem lýst er að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.