Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Large Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Storbank |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 15.520 m.kr.
Samþykkt tilboð í nýja óverðtryggða flokkinn ISB CBF 28 voru samtals 3.520 m.kr. á 0,15% álagi á 1 mánaða REIBOR. Heildartilboð voru 6.900 m.kr. á álagi á bilinu -0,05% til 0,38%. Bankinn gefur einnig út 960 m.kr. í flokknum til eigin nota. Heildarstærð flokks eftir útgáfuna verður 4.480 m.kr. og þar af eru 960 m.kr. til eigin nota.
Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISB CB 31 voru samtals 5.360 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 7,34%. Heildartilboð voru 5.540 m.kr. á bilinu 7,31% til 7,36%. Heildarstærð flokks eftir útgáfuna verður 20.920 m.kr. og þar af eru 960 m.kr. til eigin nota.
Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISB CBI 32 voru samtals 2.000 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,98%. Heildartilboð voru 3.080 m.kr. á bilinu 2,92% til 3,01%. Seld verða áður útgefin bréf í eigu bankans. Heildarstærð flokks er 40.000 m.kr. og þar af eru 22.600 m.kr. til eigin nota eftir útboðið.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 11. mars 2026.
Umsjónaraðili útboðsins var Verðbréfamiðlun Íslandsbanka.