Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Large Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Storbank |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Aðalfundur Íslandsbanka hf. var haldinn í dag, fimmtudaginn 19. mars 2026, á hótel Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík. Jafnframt var gefinn kostur á rafrænni þátttöku á fundinum.
Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf þar sem Heiðar Guðjónsson, stjórnarformaður, kynnti skýrslu stjórnar og Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri, fór yfir starfsemi og afkomu bankans á árinu 2025. Ársreikningur bankans var samþykktur sem og skýrsla um framkvæmd starfskjarastefnu. Tillaga um greiðslu arðs að fjárhæð 12,6 milljarða króna, sem jafngildir 7,28 krónur á hlut, var samþykkt. Ákvað fundurinn að KPMG ehf. verði kjörið endurskoðunarfélag Íslandsbanka.
Samþykkt var tillaga stjórnar um þóknun stjórnarmanna og nefndarmanna í undirnefndum stjórnar sem og þóknun nefndarmanna í tilnefningarnefnd bankans. Aðalfundur samþykkti einnig tillögur stjórnar um breytingar á starfskjarastefnu bankans.
Tillögur til breytinga á samþykktum bankans voru samþykktar. Þá samþykkti aðalfundur tillögu stjórnar um lækkun hlutafjár með ógildingu eigin hluta og samsvarandi breytingu á samþykktum félagsins. Jafnframt var samþykkt tillaga stjórnar um heimild stjórnar til að kaupa fyrir hönd bankans allt að 10% af hlutafé hans. Heimild þessi skal nýtt í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup bankans á eigin bréfum, t.d. með útboðsfyrirkomulagi, enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þátttöku í slíkum viðskiptum. Aðalfundur samþykkti einnig framlagðar breytingar á starfsreglum tilnefningarnefndar.
Í samræmi við grein 4.3. í samþykktum Íslandsbanka fór kosning stjórnar fram sem margfeldiskosning. Í stjórn Íslandsbanka sitja því nú eftirfarandi sjö stjórnarmenn:
- Haukur Örn Birgisson
- Heiðar Guðjónsson
- Helga Hlín Hákonardóttir
- Margrét Pétursdóttir
- Stefán Pétursson
- Stefán Sigurðsson
- Valgerður Hrund Skúladóttir
Heiðar Guðjónsson var endurkjörinn formaður stjórnar.
Varamenn í stjórn Íslandsbanka eru:
- Herdís Gunnarsdóttir
- Magnús E. Björnsson
Sjálfkjörið var í tilnefningarnefnd bankans og stöðu varamanns. Í tilnefningarnefnd sitja því nú eftirfarandi tveir nefndarmenn:
- Anna Rut Þráinsdóttir
- Hilmar Garðar Hjaltason
Varamaður í tilnefningarnefnd bankans er Dröfn Guðmundsdóttir.
Í meðfylgjandi skjali er nánar greint frá niðurstöðum fundarins.