Onsdag 4 Februari | 23:08:31 Europe / Stockholm

Prenumeration

Kalender

Est. tid*
2023-10-26 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-27 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-04 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-02-09 - Bokslutskommuniké 2022
2022-10-27 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-07-28 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-05 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-17 - Årsstämma
2022-02-10 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-28 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-28 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-05 - Kvartalsrapport 2021-Q1

Beskrivning

LandIsland
ListaLarge Cap Iceland
SektorFinans
IndustriStorbank
Íslandsbanki är verksamma inom finanssektorn. Idag erbjuder banken ett brett utbud av finansiella tjänster, huvudsakligen inriktat mot små- och medelstora företagskunder. Tjänsteutbudet är brett och inkluderar exempelvis kapitalförvaltning samt lånefinansiering. Utöver huvudverksamheten erbjuds diverse kringtjänster. Bolaget bedriver verksamhet runtom den isländska hemmamarknaden.

Vem äger bolaget?

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

2026-02-04 19:10:00

Vísað er til tilkynningar Íslandsbanka hf. sem birt var 6. janúar 2026 um áframhaldandi framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum, sem upphaflega var tilkynnt um 7. júlí 2025. Í viku 6 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 3.842.182 eigin hluti að kaupverði alls kr. 548.939.981 eins og nánar er greint í þessari tilkynningu.

Í viku 6 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 3.842.182 eigin hluti að kaupverði alls kr. 548.939.981 eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
2.2.2609:58:29300.000143,0042.900.000123.753.195
2.2.2610:30:24140.000142,7519.985.000123.893.195
2.2.2613:57:36500.000143,0071.500.000124.393.195
2.2.2615:12:23250.000143,2535.812.500124.643.195
3.2.2609:58:22300.000144,0043.200.000124.943.195
3.2.2610:45:16200.000143,0028.600.000125.143.195
3.2.2613:35:22200.000142,5028.500.000125.343.195
3.2.2614:27:37500.000142,5071.250.000125.843.195
3.2.2614:53:10300.000142,5042.750.000126.143.195
3.2.2615:18:15150.000142,5021.375.000126.293.195
4.2.2611:55:12150.000142,0021.300.000126.443.195
4.2.2613:02:04400.000142,0056.800.000126.843.195
4.2.2613:20:09200.000142,5028.500.000127.043.195
4.2.2613:33:10150.000144,0021.600.000127.193.195
4.2.2613:45:00102.182145,5014.867.481127.295.377
 Samtals vika 63.842.182 548.939.981 

Fyrir framangreind viðskipti í viku 6 átti bankinn 123.453.195 eigin hluti, sem nemur 6,57% af útgefnum hlutum.

Þessari umferð endurkaupa, sem tilkynnt var um í kauphöll 6. janúar 2026 og hófust 7. janúar 2026, er nú lokið. Samkvæmt framangreindri tilkynningu var áætlað að kaupa allt að 27 milljón hluti sem jafngildir um 1,44% af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 3.900.000.000. Þessi umferð endurkaupa átti að standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð yrði náð, en þó aldrei lengur en til 27. febrúar 2026.

Í þessari umferð endurkaupa hefur bankinn keypt 26.777.182 hluti, sem nemur 1,42% af útgefnum hlutum og nemur heildarkaupverð eigin hluta samtals kr. 3.899.999.981. Framangreindu hámarki heildarfjárhæðar endurkaupa í þessari umferð er því náð.

Bankinn á samtals 127.295.377 eigin hluti eða sem nemur 6,77% af útgefnum hlutum í bankanum. Með viðskiptum í viku 6 lýkur 15 milljarða króna endurkaupaáætlun sem upphaflega var tilkynnt um þann 7. júlí 2025. Áform um bestun á samsetningu eiginfjár standa enn, háð markaðsaðstæðum, sbr. tilkynning í kauphöll fyrr í dag, 4. febrúar 2026, um nýja heimild bankans frá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands til kaupa á eigin hlutum fyrir 15 milljarða króna markaðsvirði. Bankinn mun tilkynna um tímasetningu og framkvæmd endurkaupa samkvæmt framangreindri heimild þegar ákvörðun um þau hefur verið tekin.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglur 1290/2025 um sama efni. Samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.