Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Large Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Storbank |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Íslandsbanki verður með útboð á sértryggðum skuldabréfum mánudaginn 23. mars 2026. Boðnir verða út flokkarnir ISB CBF 28 og ISB CBI 32.
Útboð ISB CBF 28 verður með þeim hætti að öll skuldabréfin verða seld á sama verði eða hæsta samþykkta álagi ofan á 1 mánaða REIBOR.
Fyrirkomulag útboðs ISB CBI 32 verður með þeim hætti að öll samþykkt tilboð verða seld á hæstu samþykktu ávöxtunarkröfunni.
Bankinn áskilur sér rétt til að samþykkja eða hafna tilboðum að hluta til eða öllu leyti.
Áætlaður uppgjörsdagur viðskipta er 30. mars 2026.
Sértryggðu skuldabréfin verða gefin út undir útgáfuramma Íslandsbanka fyrir sértryggð skuldabréf. Grunnlýsingu ásamt viðaukum má finna á vefsíðu fjárfestatengsla: Sértryggð skuldabréf grunnlýsing.
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið [email protected] fyrir kl. 16:00 þann 23. mars 2026.