Torsdag 26 November | 21:31:20 Europe / Stockholm
Est. tid*
2026-08-31 - Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-04-29 - X-dag ordinarie utdelning SOLID 0.00 ISK
2026-04-16 - Årsstämma
2026-03-31 - Bokslutskommuniké 2025
2025-08-29 - Kvartalsrapport 2025-Q2
LandIsland
ListaFirst North Iceland
SektorSällanköp
IndustriGaming
Solid Clouds är en spelutvecklare inriktade mot MMO-genren. Idag utvecklar, äger och publicerar bolaget ett utbud av spel anpassade för diverse konsolsystem, datorer samt smarttelefoner. Verksamheten bedrivs genom med störst närvaro inom Norden och Island. Exempel på lanserade och egenutvecklade spel inkluderar exempelvis Starborne.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Niðurstöður hluthafafundar 26. nóvember 2026

2026-11-26 17:58:00

Hluthafafundur Solid Clouds hf. var haldinn í dag, fimmtudaginn 26. nóvember 2026 kl 16:00, í höfuðstöðvum félagsins að Vegmúla 2, 108 Reykjavík. Allar tillögur stjórnar voru samþykktar.

1. Afskráning hlutabréfa af Nasdaq First North

Fundurinn samþykkti með 95,13% greiddra atkvæða að hlutabréf félagsins (auðkenni SOLID, ISIN IS0000033173) verði tekin úr viðskiptum á Nasdaq First North Growth Market Iceland, að fengnu samþykki Nasdaq Iceland hf. Félagið mun senda Nasdaq niðurstöðu fundarins og fylgja eftir umsókn sinni frá 16. nóvember 2026.

Nasdaq tekur sjálfstæða ákvörðun um umsóknina og tímasetningu afskráningar. Síðasti viðskiptadagur hefur ekki verið ákveðinn og verður tilkynntur þegar hann liggur fyrir. Fram að þeim tíma verða hlutabréf félagsins áfram í viðskiptum á First North.

2. Breyting á samþykktum
Fundurinn samþykkti breytingu á 1. mgr. 19. gr. samþykkta félagsins þannig að hún hljóðar svo:
„Stjórn félagsins skal skipuð þremur aðalmönnum, kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn. Ekki skulu kjörnir varamenn í stjórn.“
Breytingin öðlast gildi við skráningu í fyrirtækjaskrá. Uppfærðar samþykktir verða birtar á vef félagsins að skráningu lokinni.

3. Breytt stjórnarskipan
Fundurinn samþykkti að skilyrtar úrsagnir aðalmannanna Elíasar Skúla Skúlasonar og Bergþóru Halldórsdóttur og varamannanna Björns Inga Pálssonar, Ingólfs Vignis Ævarssonar og Ólafs Andra Ragnarssonar taki gildi þegar samþykktabreytingin hefur verið skráð í fyrirtækjaskrá. Frá þeim tíma verður stjórn félagsins skipuð eftirtöldum, sem sitja áfram út yfirstandandi kjörtímabil:

  • Eggert Árni Gíslason, stjórnarformaður
  • Davíð Gunnarsson
  • Andrea Olsen

Félagið mun birta tilkynningu þegar breytingin hefur tekið gildi. Stjórn félagsins þakkar fráfarandi stjórnar- og varamönnum fyrir störf þeirra í þágu félagsins.