Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | First North Iceland |
| Sektor | Sällanköp |
| Industri | Gaming |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Á hluthafafundi Solid Clouds hf. sem lauk nú um kl. 17:00 1. apríl 2026, voru tillögur stjórnar félagsins um 80% lækkun hlutafjár félagsins og um björgunarfjörmögnun, samþykktar.
Þar með hafa hluthafar samþykkt brúarlán að fjárhæð 30.000.000 kr. auk lántöku félagsins gegn útgáfu breytanlegra skuldabréfa í þremur áföngum að fjárhæð allt að 400 milljónir. Í tillögunni felst að stjórn sé heimilt að bjóða skuldabréfin félaginu 1961 ehf., kt. 690224-0620, með þeim skilmálum og kjörum og fram koma í áskriftarsamningi félagsins og 1961 ehf.
Til tryggingar björgunarfjármögnun var veðsetning hugverkaréttinda félagsins, þ.m.t. vörumerkja og hugbúnaðar, sem og veð í endurgreiðslukröfu félagsins á hendur Skattinum vegna frádráttar frá álögðum tekjuskatti samkvæmt lögum nr. 152/2009 um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, samþykkt.
Björgunarfjármögnunin er alfarið háð því að uppfyllt séu almenn frestskilyrði (General Conditions Precedent), auk sérstakra frestskilyrða fyrir hvern og einn áfanga breytanlegu skuldabréfanna, líkt og nánar er kveðið á um í áskriftarsamningnum.
Líkt og áður var upplýst er markmið fjármögnunar að styrkja fjárhagsstöðu félagsins og styðja við áframhaldandi vöxt og þróun leiksins Starborne: Frontiers.