SOLID CLOUDS HF. – Viðbótargögn vegna hluthafafundar 26. nóvember 2026
2026-11-23 10:43:00
Vísað er til tilkynningar Solid Clouds hf. frá 18. nóvember 2026 um boðun hluthafafundar sem haldinn verður fimmtudaginn 26. nóvember 2026 kl. 16:00 að Vegmúla 2, 108 Reykjavík.
Í fundarboði var vísað til fylgiskjals um viðskipti með hlutabréf félagsins og markaðsaðstæður, sem fylgja átti greinargerð með tillögu stjórnar um afskráningu. Fylgiskjalið fylgdi ekki birtingunni og er birt hér, merkt fylgiskjal 3. Það er einnig aðgengilegt á vef félagsins, solidclouds.com, og á skrifstofu félagsins.
Dagskrá fundarins og tillögur stjórnar eru óbreyttar.