Alvotech birtir uppgjör fyrri árshelmings 2026 þann 19. ágúst nk.
REYKJAVÍK (10. ágúst 2026) – Alvotech (NASDAQ: ALVO) mun birta uppgjör fyrri árshelmings 2026 þann 19. ágúst nk., eftir lokun markaða í Bandaríkjunum. Fundur til kynningar á uppgjörinu verður sendur út í beinu streymi og hefst kl. 12 á hádegi, fimmtudaginn 20. ágúst nk.
- Til að hlusta á streymið, skráið ykkur hér: Skráning fyrir streymi af uppgjörsfundi
- Fyrir þá sem hyggjast beina spurningum til stjórnenda: Skráning fyrir þátttakendur í spurningatíma
Glærur og annað kynningarefni verða aðgengileg á vefsíðu Alvotech https://alvotech.com/financials fyrir fundinn.
Nánari upplýsingar
Fjölmiðlatengsl
Benedikt Stefánsson
Sarah MacLeod
[email protected]
Fjárfestatengsl
Dr. Balaji V. Prasad (Bandaríkin)
Benedikt Stefánsson (Ísland)
[email protected]
Um Alvotech
Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.
Meiri upplýsingar er að finna á vefsíðu félagsins https://alvotech.is á íslensku eða https://alvotech.com á ensku. Þá er einnig hægt að fylgjast með félaginu á samfélagsmiðlunum LinkedIn, Facebook, Instagram og YouTube.