Torsdag 11 Juni | 02:46:46 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2027-03-11 N/A Bokslutskommuniké 2026
2026-11-12 22:30 Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-08-20 22:30 Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-05-08 - X-dag ordinarie utdelning ALVO 0.00 ISK
2026-05-07 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-03-19 - Bokslutskommuniké 2025
2025-11-12 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-08-14 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-06-26 - X-dag ordinarie utdelning ALVO 0.00 ISK
2025-06-25 - Årsstämma
2025-05-08 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-03-26 - Bokslutskommuniké 2024
2024-11-14 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-08-16 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-05-22 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-20 - Bokslutskommuniké 2023
2023-11-14 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-17 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-06-06 - Årsstämma
2023-05-19 - Kvartalsrapport 2023-Q1

Beskrivning

LandIsland
ListaLarge Cap Iceland
SektorHälsovård
IndustriMedicinteknik
Alvotech är ett bioteknikbolag som fokuserar på utveckling och tillverkning av biosimilära läkemedel. Bolagets pipeline består av biosimilar-kandidater som syftar till att behandla autoimmuna sjukdomar, ögonsjukdomar, osteoporos och cancer. Bolaget erbjuder sina produkter till patienter över hela världen. Alvotech grundades år 2013 och har sitt huvudkontor i Reykjavík.

Intresserad av bolagets nyckeltal?

Analysera bolaget i Börsdata!

Vem äger bolaget?

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

2026-06-04 10:00:00

Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO SDB) tilkynnti í dag að fyrirtækið hafi lagt inn að nýju til Matvæla- og lyfjastofnunar Bandaríkjanna (FDA) umsóknir um leyfi til markaðssetningar í Bandaríkjunum á hliðstæðum við líftæknilyfin Simponi, Simponi Aria (AVT05) og Eylea 2 mg (AVT06).

Áður en umsóknirnar voru lagðar inn að nýju sendi Alvotech inn ítarlegt svar við athugasemdabréfi FDA (e. Post-Application Action Letter; PAAL) tengt úttekt á framleiðsluaðstöðu félagsins síðastliðið sumar. Í kjölfar hennar hefur Alvotech undanfarna mánuði unnið að því að styrkja ýmsa þætti í innri gæða- og framleiðslukerfum. Jafnframt hefur félagið þegar svarað þeim athugasemdum FDA sem bárust í kjölfar reglubundinnar úttektar á cGMP-framleiðsluleyfi félagsins sem fram fór í byrjun maí sl.

FDA hefur allt að sex mánuði til þess að afgreiða og samþykkja umsóknirnar um markaðsleyfi í samræmi við gildandi reglur um leyfisveitingaferlið í Bandaríkjunum.

Umsækjandi um markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir AVT03, hliðstæðu við Prolia og Xgeva (denosumab) sem Alvotech hefur þróað og framleiðir er Dr. Reddy‘s Laboratories Ltd. Mun Dr. Reddy‘s sjá um að leggja markaðsleyfisumsókn fyrir AVT03 inn að nýju hjá FDA. Samstarfsaðili Alvotech við markaðssetningu og sölu AVT05 og AVT06 í Bandaríkjunum er Teva Pharmaceutical Industries Ltd. en Alvotech ber ábyrgð á þróun, umsóknum um markaðsleyfi og framleiðslu þeirra.
   
„Umsóknirnar marka mikilvægan áfanga að lokinni umfangsmikilli vinnu sem fram hefur farið á framleiðslu- og gæðasviðum félagsins,“ sagði Lisa Graver, forstjóri Alvotech. „Við höfum unnið náið með FDA í öllu ferlinu, bæði þegar reglubundin úttekt stofnunarinnar fór fram í Reykjavík í maí og til að undirbúa ítarlegt svar við PAAL-athugasemdabréfinu. Eins og áður hefur komið fram teljum við að niðurstaða úttektarinnar í maí undirstriki að framleiðsluaðstaða félagsins stenst ítrustu kröfur sem gerðar eru til cGMP lyfjaframleiðslu og staðfesti þann mikla árangur sem náðst hefur af þeim endurbótum sem við höfum ráðist í síðan á síðasta ári. Við leggjum megináherslu á markviss og öguð vinnubrögð á öllum sviðum starfseminnar til þess að geta boðið sjúklingum um allan heim upp á hágæða hliðstæður líftæknilyfja.“

AVT05 er fyrirhuguð hliðstæða við líftæknilyfin Simponi og Simponi Aria, sem innihalda virka efnið golimumab. Þau eru notuð til meðferðar við ýmsum þrálátum bólgusjúkdómum. AVT06 er fyrirhuguð hliðstæða við líftæknilyfið Eylea 2 mg, sem inniheldur virka efnið aflibercept. Lyfið er notað til meðferðar við alvarlegum sjúkdómum á sjónhimnu sem geta leitt til sjónskerðingar eða blindu. AVT03 er fyrirhuguð hliðstæða við líftæknilyfin Prolia og Xgeva, sem innihalda virka efnið denosumab. Lyfin eru notuð við meðferð á sjúkdómum í beinum, vegna krabbameins eða beinþynningar.

AVT05 hefur hlotið markaðsleyfi sem hliðstæða við Simponi (golimumab) á mörgum alþjóðlegum mörkuðum, þar á meðal í öllum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins, í Bretlandi og Japan. Fyrir Bandaríkjamarkað hefur Alvotech þróað fyrirhugaða hliðstæðu við Simponi Aria sem er stungulyf gefið í æð en Simponi er stungulyf til notkunar undir húð sem inniheldur sama virka efnið golimumab.

AVT06 hefur hlotið markaðsleyfi sem hliðstæða við Eylea (aflibercept) 2 mg á mörgum alþjóðlegum mörkuðum, þar á meðal á öllu Evrópska efnahagssvæðinu, í Bretlandi, Japan og Kanada.

AVT03 hefur hlotið markaðsleyfi sem hliðstæða við Prolia og Xgeva (denosumab) á mörgum alþjóðlegum mörkuðum, þar á meðal öllu Evrópska efnhagssvæðinu, í Bretlandi og Japan.

Nánari upplýsingar veitir Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið
Benedikt Stefánsson, forstöðumaður
[email protected]

Notkun vörumerkja
Simponi og Simponi Aria eru skráð vörumerki Johnson og Johnson. Eylea er skráð vörumerki Regeneron Pharmaceuticals Inc. og Bayer AG. Prolia og Xgeva eru skráð vörumerki Amgen.

Um Alvotech
Alvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þróunar- og framleiðsluþættir í höndum fyrirtækisins. Fimm hliðstæður hafa þegar hlotið markaðsleyfi og eru komnar á markað, hliðstæður við Humira (adalimumab), Stelara (ustekinumab), Simponi (golimumab), Eylea (aflibercept) og Prolia/Xgeva (denosumab). Þá vinnur Alvotech meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu og krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.

Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu Alvotech, á fjárfestasíðu okkar og á almennri vefsíðu félagsins á ensku. Fylgjast má með starfsemi Alvotech á LinkedIn, Facebook, Instagram og YouTube.