Ásar hf. - Útboð á víxlum fimmtudaginn 15. október 2026
Ásar hf. efna til útboðs á víxlum fimmtudaginn 15. október 2026. Boðnir verða til sölu víxlar í flokknum ASAR270421, undir kr. 9.000.000.000 útgáfuramma félagsins.
ASAR270421 er nýr 6M víxill með lokagjalddaga þann 21. apríl 2027. Nafnverðseining víxlanna er 20 m.kr.
Útboðið verður með „hollenskri“ aðferð þar sem öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu samþykktu flötum vöxtum. Félagið áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka öllum tilboðum að hluta.
Tilkynnt verður um niðurstöðu útboðsins og úthlutun til fjárfesta þegar niðurstaða liggur fyrir, þó eigi síðar en fyrir opnun markaða föstudaginn 16. október 2026.
Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður fimmtudaginn 22. október 2026. Sótt verður um töku víxlana til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Kauphöll mun tilkynna um fyrsta dag töku til viðskipta með eins dags fyrirvara.
Íslandsbanki hf. hefur umsjón með sölu og kynningu á útboðinu. Tilboðum, þar sem fram koma upplýsingar um tilboðsfjárhæð og flata vexti, skal skilað til Íslandsbanka hf. fyrir kl. 16:00, fimmtudaginn 15. október 2026 á netfangið [email protected].
Nánari upplýsingar veita:
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka, netfang: [email protected].
Hjörtur Þór Steindórsson, fjármálastjóri Ása hf., netfang: [email protected].
Útboðið er undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c- og d- liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindan flokk skuldaskjals verða birt á vefsíðu félagsins: https://www.asar.is/fjarfestar.