Bifogade filer
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Handel & varor |
| Industri | Dagligvaror |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Bera hf. efnir til útboðs á skuldabréfum mánudaginn 15. júní 2026. Boðinn verður til sölu nýr skuldabréfaflokkur með auðkennið BERA 28 1.
BERA 28 1 er nýr almennur (e. senior) skuldabréfaflokkur sem mun greiða fljótandi vexti tengda þriggja mánaða REIBOR vöxtum, auk 1,10% vaxtaálags, með einni höfuðstólsgreiðslu á lokagjalddaga þann 23. júní 2028.
Útboðið verður með föstum kjörum eða 1,10% álagi á 3M REIBOR og eru fjárfestar beðnir um að skila inn magntilboði.
Stefnt er að tilboðum að fjárhæð 1.000-2.000 m.kr. að nafnverði.
Tilkynnt verður um niðurstöðu útboðsins og úthlutun til fjárfesta þegar niðurstaða liggur fyrir, þó eigi síðar en fyrir opnun markaða þriðjudaginn 16. júní 2026.
Félagið áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka öllum tilboðum að hluta.
Greiðslu og uppgjörsdagur er fyrirhugaður þriðjudaginn 23. júní 2026. Í kjölfar uppgjörs og afhendingar verður sótt um töku skuldabréfaflokksins til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Kauphöll mun tilkynna um fyrsta dag töku til viðskipta með eins dags fyrirvara.
Íslandsbanki hf. hefur umsjón með sölu og kynningu á útboðinu. Tilboðum skal skila til Verðbréfamiðlunar Íslandsbanka fyrir kl. 16:00, mánudaginn 15. júní 2026 á netfangið [email protected].
Útboðið er undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindan flokk skuldaskjals verða birt á vefsíðu félagsins: https://berahf.is/fjarfestar/skuldabrefa-og-vixlautgafa/
Meðfylgjandi er kynning frá opnum kynningarfundi fyrir skuldabréfa- og víxlafjárfesta sem haldinn var í höfuðstöðvum félagsins þann 2. júní 2026.
Nánari upplýsingar veitir:
Óskar Ingi Magnússon, fjármálastjóri, [email protected]