Tisdag 3 November | 18:48:46 Europe / Stockholm
Est. tid*
2027-03-08 N/A Årsstämma
2027-02-11 N/A Bokslutskommuniké 2026
2026-11-05 17:45 Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-10-02 - X-dag halvårsutdelning EIK 0.55
2026-08-18 - Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-05-07 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-04-17 - X-dag halvårsutdelning EIK 0.55
2026-02-05 - Bokslutskommuniké 2025
2025-10-29 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-09-26 - X-dag halvårsutdelning EIK 0.5
2025-08-13 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-05-08 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-04-11 - X-dag halvårsutdelning EIK 0.5
2025-02-13 - Bokslutskommuniké 2024
2024-10-31 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-08-15 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-05-02 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-04-12 - X-dag ordinarie utdelning EIK 0.74 ISK
2024-04-11 - Årsstämma
2024-02-15 - Bokslutskommuniké 2023
2023-11-15 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-17 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-04-27 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-02-28 - Bokslutskommuniké 2022
2022-10-27 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-08-25 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-05 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2021-04-29 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-25 - Årsstämma
2021-02-11 - Bokslutskommuniké 2020
2020-10-28 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-27 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-06-10 - Årsstämma
2020-04-29 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-03-10 - Bokslutskommuniké 2019
2019-10-31 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-28 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-05-08 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-04-11 - X-dag ordinarie utdelning EIK 0.29 ISK
2019-04-10 - Årsstämma
2019-03-07 - Bokslutskommuniké 2018
2016-04-13 - X-dag ordinarie utdelning EIK 0.24 ISK
LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFastigheter
IndustriFörvaltning
Eik fasteignafélag är ett fastighetsbolag. Bolaget förvärvar, utvecklar och hyr ut fastigheter, med störst inriktning mot leasing och uthyrning av kommersiella fastigheter. Fastighetsbeståndet består av varierande typer av lokaler, anpassat för kontor, lager och butikskedjor, med störst verksamhet inom den isländska marknaden. Kunderna återfinns huvudsakligen bland små – och medelstora företag. Utöver uthyrning bistår bolaget med support och fastighetsunderhåll.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Eik fasteignafélag hf.: Árshlutauppgjör fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2026

2026-11-03 16:43:21

Árshlutareikningur Eikar fasteignafélags hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. september 2026 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins þann 3. nóvember 2026.

Meðfylgjandi er árshlutaskýrsla sem inniheldur árshlutareikning fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2026 ásamt ítarlegri upplýsingum um rekstur félagsins en fram koma í tilkynningunni.

Helstu niðurstöður árshlutareikningsins eru:

  • Rekstrartekjur námu 11.132 m.kr.
    • Þar af námu leigutekjur 9.718 m.kr.
  • Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu, söluhagnað og afskriftir nam 7.284 m.kr.
  • Heildarhagnaður nam 3.307 m.kr.
  • Handbært fé frá rekstri nam 4.238 m.kr.
  • Bókfært virði fjárfestingareigna nam 184.140 m.kr.
  • Matsbreyting fjárfestingareigna var 6.121 m.kr.
  • Söluhagnaður fjárfestingareigna nam 125 m.kr.
  • Handbært fé nam 5.246 m.kr.
  • Vaxtaberandi skuldir námu 114.558 m.kr.
  • Nettó skuldsetningarhlutfall (nettó vaxtaberandi skuldir / virði fasteigna, lóða og byggingarheimilda) nam 59,3%
  • Hagnaður á hlut var 0,97 kr.
  • Virkt virðisútleiguhlutfall var 95,1%.
  • Heildar útleiguhlutfall nam 93,5%.
  • Vegnir verðtryggðir vextir námu 3,81%.
  • Vegnir óverðtryggðir vextir námu 9,17%.

Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri:

„Á fjórðungnum héldum við áfram á þeirri braut sem við lýstum í bréfi til hluthafa í mars: Stór hús, öflugir viðskiptavinir, fyrirsjáanlegur rekstrarkostnaður. Dalvegur 6–8 bættist við eignasafnið og við seldum áfram minni einingar, þar sem eignarhlutur okkar var hverfandi.

Umbreytingu Eyravegs á Selfossi er lokið. Húsið er að fullu útleigt, meðal annars undir íþróttastarfsemi. Eik aflaði byggingarheimilda með skiptingu lóðarinnar og breytingu á deiliskipulagi, og var íbúðalóðin að Eyravegi seld á fyrri helmingi ársins. Þetta er aðferðin sem við boðuðum: Verðmætaaukning með breytingu á skipulagi og útleigu án þess að Eik sé byggingaraðilinn. Um leið erum við áfram þátttakendur í uppbyggingu atvinnulífs og æskulýðsstarfs á Suðurlandi.

Handbært fé frá rekstri síðustu tólf mánuði nam 11,1% af markaðsvirði félagsins í lok fjórðungsins. Seinni hluti arðgreiðslu ársins var greiddur í október, eins og við boðuðum í mars. Reksturinn heldur áfram að skila hluthöfum félagsins verðmætum sem sést í sterkum arðgreiðslum sem er afleiðing öflugs undirliggjandi reksturs.

Frá áramótum höfum við mætt á skuldabréfamarkaðinn á þeim dögum sem við tilkynntum í útgáfuáætlun ársins og selt skuldabréf fyrir 18,7 ma.kr. í öllum flokkum, þar af 6,7 ma.kr. í langa flokknum. Í mars sögðum við að árleg útgáfa í löngu flokkunum yrði 5–7% af heildarskuldum og við ljúkum árinu rétt undir 7%. Undir lok árs birtum við útgáfuáætlun fyrir árið 2027 og sýnum þar meira á spilin, eins og við boðuðum. Eik var fyrst skráðra félaga  til að birta slíka áætlun í langan tíma og við ætlum að vera áfram í fararbroddi í framkvæmd útboða og upplýsingagjöf um fjármögnun félagsins.

Útleigan er áfram sterk. Virðisútleiguhlutfall var 95,1% í lok fjórðungsins og innan þess bils sem við gáfum út fyrir árslok. Frá og með þessum fjórðungi undanskiljum við ekki lengur þróunareignir í hlutfallinu. Á þeim grunni er hlutfallið 93,5% og þannig munum við birta það framvegis. Við teljum einfaldlega að birting útleiguhlutfalls án þess að undanskilja tilteknar eignir gefi gleggri mynd af rekstri félagsins, þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir og brýni stjórnendur og starfsmenn þess í að ná meiri árangri þegar kemur að útleigu.

Á fjórða ársfjórðungi héldum við áfram einföldun skipulagsins sem hófst á síðasta ári og höfum ráðist í endurskipulagningu og hagræðingu á skrifstofu félagsins. Við áætlum að þessar aðgerðir komi til með að lækka rekstrarkostnað um 110 m.kr. á ársgrundvelli frá og með árinu 2027. Einskiptiskostnaður að fjárhæð rúmlega 45 m.kr. verður gjaldfærður á fjórða ársfjórðungi í tengslum við starfslok starfsfólks.

Í mars kynntum við nýja stefnu þar sem við einsettum okkur að einfalda eignasafn félagsins, gera fjármögnun félagsins fyrirsjáanlegri og reksturinn hagkvæmari og skilvirkari. Við höfum náð miklum árangri í framfylgd nýrrar stefnu og höldum ótrauð áfram á sömu braut.”

Rekstur félagsins

Rekstrartekjur Eikar námu 11.132 m.kr. á tímabilinu og jukust um 19,8% milli ára, þar af námu leigutekjur 9.718 m.kr. Rekstrarkostnaður hækkaði um 11,1% milli ára og nam 3.848 m.kr. EBITDA tímabilsins nam 7.284 m.kr., sem er 24,9% aukning á milli tímabila. Leiðrétt fyrir einskiptiliðum á árinu 2025 nam aukningin 22,7%.

Á sama tíma og rekstrartekjur félagsins aukast kröftuglega er hægari vöxtur í útgjöldum. Það skilar sér í hækkun á NOI hlutfalli sem nam 72,9% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 samanborið við 71,0% á sama tímabili árið áður.

Matsbreyting fjárfestingareigna nam 6.121 m.kr. og nettó fjármagnskostnaður nam 8.908 m.kr.

Heildarhagnaður tímabilsins nam 3.307 m.kr.

Efnahagur félagsins

Heildareignir félagsins námu 196.369 m.kr. í lok september 2026. Þar af eru fjárfestingareignir að virði 184.140 m.kr. og eignir til eigin nota að virði 5.350 m.kr. Eigið fé félagsins nam 54.350 m.kr. í lok tímabilsins. Nettó skuldsetningarhlutfall félagsins (nettó vaxtaberandi skuldir / virði fasteigna, byggingarheimilda og lóða) var 59,3%. Á aðalfundi félagsins þann 16. apríl 2026 var samþykkt að greiða út arð til hluthafa vegna rekstrarársins 2025 að fjárhæð 3.732,7 m.kr. og að hann yrði greiddur í tveimur jöfnum greiðslum. Útborgunardagur vegna fyrri greiðslunnar var 28. apríl 2026 og 14. október 2026 vegna seinni greiðslunnar. Eigið fé félagsins við lok þriðja ársfjórðungs tekur mið af skuldbindingu vegna seinni arðgreiðslu ársins.

Heildarskuldir félagsins námu 142.019 m.kr. þann 30. september 2026. Þar af voru vaxtaberandi skuldir 114.558 m.kr. og tekjuskattsskuldbinding 16.379 m.kr.          

Það sem af er ári hefur félagið gefið út þrjá nýja skuldabréfaflokka. Samtals hafa verið gefin út skuldabréf að nafnvirði 6.700 m.kr. í flokki EIK 120266, 7.000 m.kr. í EIK 150531 og 5.000 m.kr. í EIK 29 1. Skuldabréfaflokkurinn EIK 050726, var á lokagjalddaga í júlí 2026 og er greiddur upp að fullu. Næsti lokagjalddagi skuldabréfaflokka félagsins er að fjárhæð u.þ.b. 3.600 m.kr. í mars 2027, sem er jafnframt eini lokagjalddagi næsta árs.

Eignasafn félagsins

Félagið heldur áfram að einfalda eignasafnið en það sem af er ári hefur félagið keypt tvær eignir fyrir um 4,0 ma.kr.: Hádegismóa 8, sem er í útleigu til Brimborgar með 20 ára þríleigusamningi, og Dalveg 6–8 í Kópavogi þar sem Kraftvélar leigja með sambærilegu samningsfyrirkomulagi, til tveggja ára ásamt framlengingarheimildum. Áætlað EBITDA-framlag eignanna er um 310 m.kr. á ársgrundvelli.

Á tímabilinu hefur félagið einnig selt eignir fyrir 1.350 m.kr. með um 125 m.kr. söluhagnaði, eða um 10% yfir bókfærðu virði.  Meðal þeirra voru Suðurlandsbraut 20, Fossvegur 3, Járnháls 4 og Síðumúli 25, auk tveggja minni eignarhluta. Þrjár af sex eignum voru ótekjuberandi lóðir. Nettóáhrif kaupa og sölu eru áætluð jákvæð um 260 m.kr. á EBITDA á ársgrundvelli.

Uppfærðar horfur

Félagið hefur uppfært horfur fyrir árið 2026 sem tekur mið af breyttu eignasafni, gjaldfærslu vegna hagræðingaraðgerða og öðrum þáttum sem hafa áhrif á afkomuna. Félagið væntir þess að EBITDA ársins 2026 verði á bilinu 9.450 – 9.640 m.kr.

Horfur miðast við vísitölu neysluverðs í október 2026 (VNV til verðtryggingar í desember).

Kynningarfundur

Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila verður haldinn miðvikudaginn 4. nóvember 2026 klukkan 8:30 á skrifstofu félagsins á 18. hæð í Smáratorgi 3. Boðið verður upp á léttan morgunmat frá kl. 8.00. Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármála og UT, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu.

Fundinum verður einnig streymt á netinu og fer skráning á rafræna fundinn fram hér:

https://vimeo.com/event/6312045/a9bdfbf57f

Eftir skráningu fá þátttakendur tölvupóst með nánari upplýsingum.

Markaðsaðilar geta sent spurningar fyrir fundinn á netfangið [email protected]. Spurningum verður svarað að kynningu lokinni.

Nánari upplýsingar veita:

Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri, [email protected]
Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármála og UT, [email protected], s. 820-8980