Bifogade filer
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Fastigheter |
| Industri | Förvaltning |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 15:00 fimmtudaginn 16. apríl 2026, á BRASA, Turninum Smáratorgi 3, 201 Kópavogi.
Meðfylgjandi er fundarboð með dagskrá aðalfundar félagsins auk tillagna stjórnar, skýrslu tilnefningarnefndar og annarra skjala sem varða aðalfundinn. Vakin er athygli á upplýsingum í fundarboði um fyrirkomulag rafrænnar forskráningar sem og á tillögum um breytingar á starfskjarastefnu félagsins, samþykktum félagsins ásamt kaupréttaráætlun og kaupréttarkerfi stjórnenda. Jafnframt er vakin sérstök athygli á meðfylgjandi bréfi forstjóra til hluthafa.
Ársskýrsla, sem inniheldur ársreikning 2025, hefur þegar verið birt og sjálfbærniskýrsla er aðgengileg á heimasíðu félagsins ásamt öðrum fundargögnum.