Bifogade filer
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Fastigheter |
| Industri | Förvaltning |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 15:00 fimmtudaginn 16. apríl 2026, á BRASA, Turninum Smáratorgi 3, 201 Kópavogi.
Ekki hafa verið gerðar breytingar á dagskrá eða tillögum fyrir fundinn sem birtar voru með tilkynningu félagsins 24. mars 2026. Fundargögn eru á heimasíðu félagsins á slóðinni: http://eik.is/hluthafar.
Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn eru beðnir um að forskrá sig tímanlega á eftirfarandi vefslóð: www.lumiconnect.com/events/eikagm2026 en opnað verður fyrir forskráningu miðvikudaginn 8. apríl 2026. Atkvæðisréttur fylgir eingöngu þeim hluthöfum sem sækja fundinn.
Aðstoð við skráningu á aðalfundinn er hægt að fá með því að senda tölvupóst á [email protected]. Hluthöfum eða umboðsmönnum hluthafa sem hafa hug á að taka til máls á fundinum er boðið að upplýsa um það með tölvupósti á sama netfang.