Bifogade filer
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Fastigheter |
| Industri | Förvaltning |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 15:00 fimmtudaginn 16. apríl 2026, á BRASA, Turninum Smáratorgi 3, 201 Kópavogi.
Framboðsfrestur til stjórnar félagsins rann út í dag, 9. apríl kl. 15:00. Eftirtalin hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins:
- Bjarni Kristján Þorvarðarson
- Eyjólfur Árni Rafnsson
- Gunnar Þór Gíslason
- Katrín Jakobsdóttir
- Ragnheiður Harðar Harðardóttir
Stjórn hefur metið öll framboð til stjórnar gild, sbr. 63. gr. a. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórnin skipuð fimm mönnum.
Nánari upplýsingar um frambjóðendur eru í viðhengi auk skýrslu tilnefningarnefndar.
Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn eru beðnir um að forskrá sig tímanlega á eftirfarandi vefslóð: www.lumiconnect.com/events/eikagm2026 og ekki seinna en kl. 15:00 miðvikudaginn 15. apríl 2026. Atkvæðisréttur fylgir eingöngu þeim hluthöfum sem mæta á fundinn. Aðstoð við skráningu á aðalfundinn er hægt að fá með því að senda tölvupóst á [email protected]