Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Fastigheter |
| Industri | Förvaltning |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Eik fasteignafélag hf. lauk í dag útboði á nýjum flokki skuldabréfa, EIK 120266. Í flokkinn EIK 120266 bárust 9 tilboð að fjárhæð 3.700 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,75-3,99%. Tilboð að nafnvirði 2.500 m.kr. voru samþykkt á ávöxtunarkröfunni 3,90%.
| Flokkur | EIK 12 0266 |
| Greiðslu- og uppgjörsdagur | 12.2.2026 |
| Samþykkt tilboð að nafnverði (m.kr.) | 2.500 |
| Samþykkt (ávöxtunarkrafa) | 3,90% |
| Fjöldi innsendra tilboða | 9 |
| Upphæð móttekinna tilboða að nafnverði (m.kr.) | 3.700 |
| Fjöldi samþykktra tilboða | 7 |
| Vegið meðaltal innsendra tilboða (ávöxtunarkrafa) | 3,85% |
| Boðhlutfall | 1,48 |
EIK 120266 er verðtryggt jafngreiðslubréf (e. annuity) með tveimur afborgunum á ári. Lokagjalddagi er í febrúar 2066.
Áætlaður uppgjörsdagur er 12. febrúar nk. og stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland fyrir lok árs.
Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri:
„Það er gaman að kynna til leiks á skuldabréfamarkaði eitt lengsta skuldabréf sem gefið hefur verið út af skráðu félagi á Íslandi. Útgáfan lýsir trausti fagfjárfesta á Eik fasteignafélagi og þökkum við þann áhuga og meðbyr sem félagið naut í útboðinu.“
Umsjónaraðili útboðsins var Markaðsviðskipti Arion banka.
Nánari upplýsingar veitir:
Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri, [email protected], s. 856-5907
Lýður Heiðar Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármála og UT, [email protected], s. 820-8980