Breyting í stjórn Eimskips
2026-05-22 18:02:31
Baldvin Þorsteinsson hefur tilkynnt Eimskipafélagi Íslands hf. að vegna anna í aðalstarfi sínu og félögum sem því tengjast muni hann láta af störfum sem varamaður í stjórn Eimskips.
Ákvörðun Baldvins hefur engin áhrif á stjórn Eimskips sem er áfram skipuð fimm aðalmönnum og einum varamanni þar til nýr varamaður hefur verið kjörinn.