Tisdag 28 Juli | 23:19:52 Europe / Stockholm
Est. tid*
2027-02-03 N/A Bokslutskommuniké 2026
2026-10-28 10:30 Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-07-28 10:30 Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-05-07 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-03-05 - Årsstämma
2026-03-04 - X-dag ordinarie utdelning FESTI 7.00 ISK
2026-02-05 - Bokslutskommuniké 2025
2025-10-30 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-07-29 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-04-29 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-03-05 - Årsstämma
2025-03-04 - X-dag ordinarie utdelning FESTI 4.50 ISK
2025-02-05 - Bokslutskommuniké 2024
2024-10-30 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-07-31 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-04-23 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-21 - X-dag ordinarie utdelning FESTI 3.00 ISK
2024-03-20 - Årsstämma
2024-02-07 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-25 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-27 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-03 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-22 - X-dag ordinarie utdelning FESTI 3.00 ISK
2022-03-02 - Årsstämma
2022-02-04 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-28 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-28 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-04-28 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-22 - Årsstämma
2021-02-24 - Bokslutskommuniké 2020
2020-03-23 - Årsstämma
2019-03-22 - X-dag ordinarie utdelning FESTI 0.00 ISK
2019-03-21 - Årsstämma
2019-02-27 - Bokslutskommuniké 2018
2016-03-17 - X-dag ordinarie utdelning FESTI 3.00 ISK
LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFinans
IndustriInvesteringar
Festi är ett holdingbolag. Inom koncernen erbjuds ett brett utbud av konsultlösningar riktade mot affärsutveckling. Specialistkompetens återfinns huvudsakligen inom finans och riskhantering, där kunderna består av små- och medelstora företag runtom den isländska marknaden. Kunderna är verksamma inom ett flertal sektorer, från energi- och livsmedelsindustrin, till fastighetssektorn.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Festi hf.: Afkoma á 2. ársfjórðungi 2026

2026-07-28 18:08:52

Sterk staða Festi en aukin óvissa og krefjandi markaðsaðstæður

Helstu niðurstöður 2. ársfjórðungs 2026

  • Vörusala nam 46.347 millj. kr. sem er aukning um 6,4% milli ára.
  • Framlegð af vöru- og þjónustusölu nam 11.522 millj. kr. sem er aukning um 4,7% milli ára.
  • Framlegðarstig nam 24,9% og lækkar um 0,4 p.p. frá 2F 2025 en hækkar um 0,9 p.p. án áhrifa gengis, breytinga á heimsmarkaði eldsneytis og breytinga opinberra gjalda á eldsneyti um síðustu áramót.
  • EBITDA nam 3.908 millj. kr. og lækkar um 0,8% milli ára.
  • Hagnaður nam 1.299 millj. kr. og arðsemi eigin fjár 13,1%.
  • Handbært fé frá rekstri nam 287 millj. kr. og lækkar um 4.918 millj.kr. milli ára, en einskiptisáhrif í rekstrartengdum eignum og skuldum skýra mismuninn. 
  • Nettó vaxtaberandi skuldir námu 39.214 millj. kr. og hafa hækkað um 6.267 millj. kr. frá síðustu áramótum vegna aukinnar fjárbindingar í vörubirgðum og viðskiptakröfum tengt hækkun eldsneytisverðs á heimsmarkaði.
  • Eigið fé nam 46.789 millj. kr. og er eiginfjárhlutfallið 40,2% í lok 2F 2026 samanborið við 41,2% í árslok 2025. Félagið greiddi arð á fjórðungnum til hluthafa að fjárhæð 2.151 millj. kr.
  • EBITDA afkomuspá félagsins fyrir árið 2026 er lækkuð um 500 millj. kr. vegna lægri framlegðar af eldsneytissölu en áætlanir gerðu ráð fyrir og nemur nú 16.000 – 16.500 millj. kr.

Ásta S. Fjeldsted, forstjóri:

„Rekstur samstæðunnar gekk ágætlega á fjórðungnum, þó að framlegð af eldsneyti hafi verið undir áætlunum og fjöldi seldra eldsneytislítra dregist saman um 4,3%, einkum vegna minni sölu til stórnotenda. Góður gangur var í öðrum vöruflokkum þar sem sala og framlegð jukust milli ára. Afgreiðslufjöldi þvert á samstæðuna stóð nánast í stað milli ára en körfustærð stækkaði þar sem fjöldi seldra vara jókst um 3,7%.

Helstu fréttir af starfseminni

  • Krónan: Endurnýjuð verslun Krónunnar í Lindum opnaði í júní eftir 9 vikna lokun og hafa viðtökur farið fram úr væntingum. Þrátt fyrir lokun Linda fjölgaði afgreiðslum í verslunum um 2,6% á milli ára og selt magn jókst um 4,5%. Kröftugur vöxtur Snjallverslunar heldur áfram og er veltuaukningin 52% á milli ára.
  • ELKO: Í júní opnaði ELKO sína sjöttu verslun í Smáralind sem hefur fengið góðar viðtökur og framundan er endurnýjun verslunar ELKO á Granda. Elko er áfram í vexti þrátt fyrir samdrátt á raftækjamarkaði (-4,1%) og netverslunin spilar þar stórt hlutverk.
  • Lyfja: Lyfja fær jákvæðasta viðhorfið á apótekaramarkaði skv. könnun Prósent og mælist með 98% vörumerkjaþekkingu. Lyfja Heyrn er sömuleiðis í sókn og hefur aukið framlegð um 39% á milli ára. Stafræn sala og þjónusta eru áfram í miklum vexti og átti lyfja.is söluvefurinn metmánuð í júní með 56% aukningu í sölu.
  • N1: N1 opnaði nýja stöð á nýjum stað við Geysi í Haukadal með bættri aðstöðu fyrir fólksbíla sem og stærri farartæki. N1 mun opna í haust glæsilega þjónustumiðstöð við Borgahellu með stærsta dekkjahóteli landsins, dekkja- og smurþjónustu og bílaþvotti fyrir bæði fólksbíla og atvinnutæki.

„Við höldum áfram að fjárfesta í innviðum, stafrænni þróun og nýjum þjónustulausnum þvert á samstæðuna. Fram undan eru mikilvæg verkefni, meðal annars opnun nýs apóteks Lyfju á Völlunum í Hafnarfirði á þriðja ársfjórðungi, opnun nýrrar verslunar Krónunnar á Höfn á fjórða ársfjórðungi og frekari uppbygging veitingaþjónustu N1 á seinni helmingi ársins. Þessi verkefni styðja við aukna þjónustu, breiðara framboð og sterkari tengingu við viðskiptavini um land allt.

Horfur fyrir seinni hluta ársins mótast af aukinni óvissu í alþjóðamálum. Ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs og spenna á eldsneytismörkuðum kalla á áframhaldandi aðhald og sveigjanleika í rekstri. Sú mikla hækkun eldsneytisverðs á heimsmarkaði sem hefur orðið mun hafa áhrif á afkomu N1 á seinni helmingi ársins.  Á móti er Krónan í mikilli sókn og útlit er fyrir að hún skili áfram kröftugum og arðbærum vexti. ELKO og Lyfja halda sínum takti og netverslanir þeirra auka mikið við sig veltu ár frá ári.

Heilt yfir gekk rekstur samstæðunnar ágætlega á fjórðungnum. Fjárhagsleg staða er traust, þótt aukin fjárbinding í vörubirgðum og viðskiptakröfum hafi tímabundið haft neikvæð áhrif á sjóðstreymi. Undirliggjandi rekstur er sterkur en ytri þættir hafa um sinn haft áhrif á framlegð í eldsneytissölu, sem hefur verið undir markmiðum. Í ljósi þessa er EBITDA afkomuspá félagsins fyrir árið 2026 lækkuð um 500 millj. kr. í 16,0-16,5 ma.kr.“ segir Ásta S. Fjeldsted.