Festi hf.: Birting uppgjörs 3F 2026 þann 28. október 2026 og afkomufundur þann 29. október
Festi birtir uppgjör sitt fyrir 3F 2026 eftir lokun markaða miðvikudaginn 28. október næstkomandi.
Afkomufundur með markaðsaðilum 29. október kl. 8:30.
Afkomufundur fyrir markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn 29. október 2026 kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 – 14 í Kópavogi. Á fundinum munu Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, og Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi, kynna afkomu samstæðunnar og svara spurningum.
Fundinum verður einnig streymt beint á vefsíðu félagsins þar sem skráning á fundinn fer jafnframt fram: https://www.festi.is/tenglar/uppgjor-3f-2026. Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected]. Spurningum verður svarað að kynningu lokinni.
Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Festi: https://www.festi.is/fjarhagsupplysingar.