Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Investeringar |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Í 5. viku 2026 keypti Festi alls 150.000 eigin hluti fyrir 51.740.000 kr. eins og hér segir:
| Vika | Dagsetning | Tími | Magn | Verð | Kaupverð |
| Vika 5 | 26.1.2026 | 11:14 | 10.000 | 344,00 | 3.440.000 |
| Vika 5 | 27.1.2026 | 15:21 | 25.000 | 345,00 | 8.625.000 |
| Vika 5 | 28.1.2026 | 13:54 | 35.000 | 345,00 | 12.075.000 |
| Vika 5 | 30.1.2026 | 11:14 | 80.000 | 345,00 | 27.600.000 |
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Fyrir kaupin þá átti Festi 4.150.000 hluti eða 1,33% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 1.553.774 eigin hluti fyrir 516.853.920 kr. og á í dag 4.300.000 hluti sem samsvarar 1,38% af hlutafé félagsins. Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 3. desember 2025 í tilkynningu til Nasdaq Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 2.500.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 0,80% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 825 milljónir króna að kaupverði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi hf. ([email protected]).