Festi hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun - vika 33
Í 33. viku 2026 keypti Festi alls 225.000 eigin hluti fyrir 69.187.500 kr. eins og hér segir:
| Vika | Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | |||||
| 33 | 11.8.2026 | 14:27:13 | 75.000 | 308,0 | 23.100.000 | |||||
| 33 | 13.8.2026 | 10:38:25 | 75.000 | 307,5 | 23.062.500 | |||||
| 33 | 14.8.2026 | 11:17:18 | 75.000 | 307,0 | 23.025.000 | |||||
| 225.000 | 69.187.500 | |||||||||
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Fyrir kaupin þá átti Festi 4.943.864 hluti eða 1,58% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 1.490.000 eigin hluti fyrir 464.070.000 kr. og á í dag 5.168.864 hluti sem samsvarar 1,65% af hlutafé félagsins. Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 1. júlí 2026 í tilkynningu til Nasdaq Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 3.000.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 0,96% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 1.000 milljónir króna að kaupverði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. ([email protected]).