Festi hf.: Tilkynning um endurkaup á eigin bréfum með öfugu tilboðsfyrirkomulagi
Á aðalfundi Festi hf. sem haldinn var þann 5. mars 2026 var samþykkt að heimila félaginu að kaupa fram að næsta aðalfundi, hlutabréf í félaginu fyrir allt að 10% af heildarhlutafé félagsins. Stjórn Festi hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins og/eða að gera félaginu kleift að standa við skuldbindingar samkvæmt kaupréttarsamningum við starfsmenn.
Endurkaupin munu að hámarki nema 1.000 milljónir króna. Við endurkaup skal hæsta leyfilega endurgjald fyrir hvern hlut ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.
Samið hefur verið við Arion banka um að annast endurkaupin. Kaupin hefjast með öfugu tilboðsfyrirkomulagi. Allir hluthafar Festi geta gert tilboð um að selja bréf sín til félagsins fyrir milligöngu Arion banka. Festi áskilur sér rétt til að taka eða hafna hvaða tilboði sem er í heild eða að hluta. Hluthafar tilgreina í sölutilboðum sínum fjölda hluta og lágmarksverð á hlut sem þeir eru reiðubúnir að samþykkja. Tilboðum verður tekið frá lægsta verði þar til fyrirhuguðu umfangi kaupanna er náð, innan tilgreindra hámarka. Allir hlutir sem félagið kaupir verða keyptir á sama verði, sem nemur hæsta verði samþykktra sölutilboða.
Endurkaupin eru gerð í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. MAR (reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum), sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Tilboðum skal skila til markaðsviðskipta Arion banka sem einnig svara fyrirspurnum, á netfangið [email protected] merkt „Festi endurkaup“ fyrir kl. 08:30, 04. nóvember 2026.
Niðurstöður verða tilkynntar í fréttakerfi Nasdaq Iceland fyrir kl. 9:30, 04. nóvember 2026. Uppgjörsdagur samþykktra tilboða er T+2 eða 06. nóvember 2026.
Festi á samtals 6.678.864 eigin hluti áður en endurkaupin samkvæmt tilboðsfyrirkomulaginu hefjast eða sem samsvarar 2,14% af hlutafé félagsins.