Festi hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar
Aðalfundur Festi hf., sem haldinn var 5. mars 2026, veitti stjórn félagsins heimild, á grundvelli 55. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög, að kaupa fyrir hönd félagsins allt að 10% af hlutafé þess. Tilgangur félagsins með endurkaupum er að lækka hlutafé félagsins og/eða að gera félaginu kleift að standa við skuldbindingar sínar skv. kaupréttarsamningum við starfsfólk.
Stjórn Festi hf. hefur á grundvelli samþykktar aðalfundar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar. Áætlað er að kaupa að hámarki 3.200.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 1,02% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 1.000 milljónir króna að kaupverði.
Kaupin verða framkvæmd í áföngum. Framkvæmd endurkaupa verður þannig háttað að kaup á hverjum viðskiptadegi munu að hámarki nema 25% af meðaltali daglegrar veltu með hlutabréf Festi á skipulegum markaði Nasdaq Iceland síðustu 20 viðskiptadaga á undan kaupdegi. Þó skulu kaup hvers viðskiptadags aldrei nema fleiri en 100.000 hlutum. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en verð síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði á Nasdaq Iceland, hvort sem er hærra.
Endurkaup samkvæmt áætluninni munu hefjast föstudaginn 6. nóvember 2026 og mun hún gilda fram að aðalfundi Festi 4. mars 2027 nema hámarki endurkaupa samkvæmt áætluninni verði náð fyrir þann tíma.
Arion banki hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna, óháð félaginu.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Viðskipti félagsins með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.
Festi hf. á 9.347.545 eigin hluti eða sem nemur 2,99% af útgefnu hlutafé áður en endurkaup samkvæmt endurkaupaáætluninni hefjast.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi hf. ([email protected]).