Festi: Útgáfa á nýjum víxlaflokki
Festi hf. hefur lokið sölu á nýjum sex mánaða víxli, FESTI270510. Þrettán tilboð að fjárhæð 1.460 m.kr. bárust í flokkinn á bilinu 8,59%- 8,80% flötum vöxtum. Tilboðum að fjárhæð 1.000 m.kr. að nafnverði var tekið í flokkinn á 8.630% flötum vöxtum. Stefnt er að víxillinn verði tekinn til viðskipta og skráður í kauphöll Nasdaq Iceland.
Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður föstudaginn 6. nóvember 2026 og í kjölfarið verður sótt um að víxlaflokkurinn verði tekinn til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland
Íslandsbanka hf. hafði umsjón með sölu, útgáfu sem og töku víxlanna til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.
Grunnlýsing hefur verið birt í tengslum við 16.000 m.kr. útgáfuramma félagsins. Grunnlýsing útgáfuramma, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu víxlaflokksins og töku víxlanna til viðskipta í Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins: https://www.festi.is/skuldabrefogvixlar
Útboðið var undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d - liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, sbr. lög nr. 14/2020 um sama efni.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi hf. ([email protected]).