Hagar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun (vika 33) og lok endurkaupaáætlunar
Í viku 33 keyptu Hagar hf. 17.255 eigin hluti að kaupverði kr. 2.061.973 eins og hér segir:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
| 10.8.2026 | 10:48 | 17.255 | 119,500 | 2.061.973 | 21.304.869 |
| 17.255 | 119,500 | 2.061.973 | 21.304.869 |
Er hér um að ræða tilkynningu um kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd þann 2. júlí 2026, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 1. júlí 2026.
Endurkaupaáætlun þessari, sem tilkynnt var um til Kauphallar þann 1. júlí 2026, er nú lokið. Samkvæmt framangreindri tilkynningu var áætlað að kaupa allt að 92.875.852 hluti, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna yrði aldrei meiri en samtals kr. 500.000.000. Hagar keyptu samtals 4.133.255 hluti, sem nemur 0,37% af útgefnum hlutum, og nam heildarkaupverð eigin hluta samtals kr. 499.999.973. Hagar eiga nú samtals 21.304.869 hluti eða 1,93% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.106.428.863 hlutir.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar var í samræmi við viðeigandi lög og reglugerðir, þ.m.t. lög nr. 2/1995 um hlutafélög, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR) og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052 sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir, sem hafa lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga hf., í síma 530-5500 eða á [email protected]