Hagar hf.: Tilkynning um endurkaup á eigin bréfum með öfugu tilboðsfyrirkomulagi
Á aðalfundi Haga hf. sem haldinn var þann 21. maí 2026 var samþykkt að heimila félaginu að kaupa á næstu 18 mánuðum, frá samþykkt, hlutabréf í félaginu fyrir allt að 10% af heildarhlutafé félagsins í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun, þ.m.t. með öfugu tilboðsfyrirkomulagi, til að setja upp viðskiptavakt og/eða til að uppfylla skuldbindingar félagsins samkvæmt kaupréttarsamningum í samræmi við kaupréttaráætlanir félagsins.
Félagið hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um að gera hluthöfum félagsins tilboð um kaup á eigin hlutum með öfugu tilboðsfyrirkomulagi („hér eftir endurkaupin“), í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins.
Endurkaupin munu að hámarki nema 85.427.255 hlutum í félaginu, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 750.000.000 kr. Við endurkaup skal hæsta leyfilega endurgjald fyrir hvern hlut ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.
Samið hefur verið við Fossa fjárfestingarbanka hf. um að annast endurkaupin. Kaupin fara fram með öfugu tilboðsfyrirkomulagi og samkvæmt hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæsta verði sem verður tekið. Allir hluthafar Haga hf. geta gert tilboð um að selja bréf sín til félagsins fyrir milligöngu Markaðsviðskipta Fossa fjárfestingarbanka hf. Hagar áskilja sér rétt til að taka eða hafna hvaða tilboði sem er í heild eða að hluta.
Endurkaupin eru gerð í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ. á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052 og lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Tilboðum skal skila til Markaðsviðskipta Fossa fjárfestingarbanka hf., sem einnig svara fyrirspurnum, á netfangið [email protected] merkt „Hagar endurkaup“ fyrir kl. 09:00, föstudaginn 27. nóvember 2026.
Niðurstöður verða tilkynntar í fréttakerfi Nasdaq Iceland fyrir kl. 9:30, föstudaginn 27. nóvember 2026. Uppgjörsdagur samþykktra tilboða er þriðjudagurinn 1. desember 2026.
Hagar hf. eiga 25.215.631 eigin hluti áður en endurkaupin samkvæmt tilboðsfyrirkomulaginu hefjast.
Nánari upplýsingar veita:
Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga hf., í síma 530-5500 eða á [email protected]
Markaðsviðskipti Fossa fjárfestingarbanka í gegnum netfangið [email protected]