Hagar hf.: Útboð á skuldabréfum 27. ágúst 2026
Hagar hf. efna til útboðs á skuldabréfum fimmtudaginn 27. ágúst 2026. Boðin verða til sölu skuldabréf í flokknum HAGA130629 1.
HAGA 130629 1 er almennur skuldabréfaflokkur sem ber breytilega vexti tengda 1 mánaðar REIBOR að viðbættu 1,00% vaxtaálagi, með lokagjalddaga þann 13. júní 2029. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 1.320 m.kr. í flokknum.
Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á lægsta samþykkta verði sem tekið er. Tilkynnt verður um niðurstöðu útboðsins og úthlutun til fjárfesta þegar niðurstaða liggur fyrir þó eigi síðar en fyrir opnun markaða föstudaginn 28. ágúst 2026.
Samhliða útboðinu fer fram skiptiútboð þar sem núverandi eigendum skuldabréfaflokksins HAGA 120926 1 gefst kostur á að selja skuldabréfin á hreina verðinu 100,0 sem samsvarar „pari”, gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði.
Útboðið er undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu skuldabréfaflokksins og töku hans til viðskipta í Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins: https://www.hagar.is/fjarfestar/skuldabrefa-og-vixlautgafa/
Skila skal inn tilboðum á netfangið [email protected] fyrir klukkan 17:00 fimmtudaginn 27. ágúst 2026. Uppgjör viðskipta fer fram fimmtudaginn 3. september 2026.
Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.
Nánari upplýsingar veita:
Arnar Geir Sæmundsson, Fossar fjárfestingarbanki hf., netfang: [email protected]
Ásgrímur Gunnarsson, Fossar fjárfestingarbanki hf., netfang [email protected]
Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, [email protected]