Hagar hf.: Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki
Hagar hf. luku í dag, 10. júlí 2026, sölu á nýjum skuldabréfaflokki HAGA 130629 1.
HAGA 130629 1 er almennur skuldabréfaflokkur sem ber breytilega vexti tengda 1 mánaðar REIBOR að viðbættu 1,00% vaxtaálagi, með lokagjalddaga þann 13. júní 2029.
Seld voru skuldabréf að nafnvirði 1.320 m.kr. á genginu 100,0.
Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna föstudaginn 17. júlí nk. og verður óskað eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í kjölfarið.
Skuldabréfin voru seld í lokuðu söluferli og útboðið var undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c- og d-liðar 4. mgr. 1. gr. lýsingarreglugerðar ESB nr. 2017/1129.
Fossar fjárfestingarbanki hf. hafði umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og fyrirhugaðri töku þeirra til viðskipta á markaði.
Nánari upplýsingar veita:
Ásgrímur Gunnarsson, Fossar fjárfestingarbanki, [email protected]
Arnar Geir Sæmundsson, Fossar fjárfestingabanki hf., [email protected]
Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, [email protected]