Lördag 12 April | 11:10:53 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2023-11-07 - Split KALD 10:1
2021-03-31 - Årsstämma
2021-03-19 - Bokslutskommuniké 2020

Beskrivning

LandIsland
ListaSmall Cap Iceland
SektorFastigheter
IndustriFörvaltning
Kaldalón är ett isländskt fastighetsbolag. Bolagets specialistkompetens återfinns inom fastighetsutveckling, med störst fokus mot förvärv och investeringar i bostadsfastigheter. Störst verksamhet återfinns inom den europeiska marknaden, med privata kunder som dominerande kundbas. En del av projekten utvecklas med bolagets samarbetspartners. Huvudkontoret är beläget i Reykjavik.
2025-04-02 17:35:00

Kaldalón hf. efnir til lokaðs útboðs á skuldabréfum þriðjudaginn 8. apríl 2025. Boðin verða til sölu skuldabréf í flokknum KALD 150436 undir kr. 30.000.000.000 útgáfuramma félagsins.

Skuldabréfaflokkurinn er verðtryggður, með 4.00% föstum vöxtum, til  11 ára, með 30 ára endurgreiðsluferli, en jöfnum 22  greiðslum á 6 mánaða fresti. Skuldabréfaflokkurinn er gefinn út undir almennu tryggingarfyrirkomulagi félagsins. Skuldabréfin eru gefin út í 20 m.kr. nafnverðseiningum

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður.  Félagið áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta. Tilkynnt verður um niðurstöðu útboðsins og úthlutun til fjárfesta þegar niðurstaða liggur fyrir þó eigi síðar en fyrir opnun markaða 9. apríl  2025.

Greiðslu og uppgjörsdagur er fyrirhugaður þriðjudagurinn, 15. apríl 2025. Sótt verður um töku skuldabréfaflokksins til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Kauphöll mun tilkynna um fyrsta dag töku til viðskipta með eins dags fyrirvara.

Landsbankinn hf. hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skilað til Landsbankans hf. fyrir kl 16:00, þriðjudaginn 8. apríl 2025 á netfangið: [email protected]  

Útboðið er undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d liðar, 4. mgr. 1. gr. lýsingarreglugerðar sem innleidd var með lögum nr. 14/2020, um sama efni. Grunnlýsing og viðauki við grunnlýsinguna hafa verið birt í tengslum við útgáfuramma félagsins. Grunnlýsinguna, viðauka við grunnlýsinguna og önnur skjöl sem tengjast skuldabréfunum og útgáfu þeirra má nálgast á vefsíðu félagsins;; https://kaldalon.is/fjarfestar/

Nánari upplýsingar veita:

Sigurbjörg Ólafsdóttir, fjármálastjóri Kaldalóns hf. [email protected]

Gunnar S. Tryggvason s: 410 6709 / 821 2090 eða [email protected]