Lördag 12 April | 11:08:21 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2023-11-07 - Split KALD 10:1
2021-03-31 - Årsstämma
2021-03-19 - Bokslutskommuniké 2020

Beskrivning

LandIsland
ListaSmall Cap Iceland
SektorFastigheter
IndustriFörvaltning
Kaldalón är ett isländskt fastighetsbolag. Bolagets specialistkompetens återfinns inom fastighetsutveckling, med störst fokus mot förvärv och investeringar i bostadsfastigheter. Störst verksamhet återfinns inom den europeiska marknaden, med privata kunder som dominerande kundbas. En del av projekten utvecklas med bolagets samarbetspartners. Huvudkontoret är beläget i Reykjavik.
2025-02-24 12:55:22

Kaldalón hf. efnir til útboðs á víxlum, þriðjudaginn 25. febrúar næstkomandi. Boðnir verða til sölu sex mánaða víxlar í nýjum flokki KALD 25 0901.

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu vöxtunum sem tekið er. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum. Félagið áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta. Tilkynnt verður um niðurstöðu útboðsins og úthlutun til fjárfesta þegar niðurstaða liggur fyrir þó eigi síðar en fyrir opnun markaða miðvikudaginn 26. febrúar.   

Landsbankinn hf. hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum, þar sem fram koma upplýsingar um nafnverð og flata vexti skal skilað til Landsbankans hf. fyrir kl. 16:00 þriðjudaginn, 25. febrúar á netfangið: [email protected]  

Greiðslu og uppgjörsdagur er fyrirhugaður mánudaginn 3. mars 2025

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. lýsingarreglugerðar (ESB) nr. 2017/1129 , sem innleidd var með lögum nr. 14/2020, um sama efni. Grunnlýsing útgáfuramma, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu víxlaflokksins og töku víxlanna til viðskipta í Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins; kaldalon.is/fjarfestar

Nánari upplýsingar veita:

Sigurbjörg Ólafsdóttir, fjármálastjóri Kaldalóns hf. [email protected]
Gunnar S. Tryggvason s: 410 6709 / 821 2090 eða [email protected]