Onsdag 10 Juni | 20:48:11 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2024-02-15 - Bokslutskommuniké 2023
2023-11-02 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-17 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-11 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-30 - Årsstämma
2023-02-15 - Bokslutskommuniké 2022
2022-02-24 - Bokslutskommuniké 2021
2021-11-25 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-26 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-27 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-04-21 - Årsstämma
2021-02-17 - Bokslutskommuniké 2020
2019-03-21 - X-dag ordinarie utdelning KVIKA 0.24 ISK

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFinans
IndustriBank
Kvika Banki bedriver bankverksamhet. Störst inriktning återfinns inom investment banking där bolaget erbjuder traditionell kapitalförvaltning, mäkleri och tillhörande rådgivning. Specialistkompetens återfinns inom erbjudandet av finansiella tjänster och investering, från räntebärande papper, aktier- och fondsparande, till fastighetsinvestering. Kunderna återfinns bland privat- och företagskunder samt institutioner.

Vem äger bolaget?

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

2026-06-10 17:40:42

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, hefur óskað eftir að láta af störfum um næstu áramót eftir tæplega 10 ára starf hjá félaginu. Hann mun gegna starfi forstjóra út árið, en stjórn félagsins mun nýta tímann fram undan til ráðningar á nýjum forstjóra.

Ármann tók við sem forstjóri Kviku árið 2017, var um tíma aðstoðarforstjóri félagsins og hefur síðan aftur gegnt stöðu forstjóra síðastliðin þrjú ár. Á þeim tæplega tíu árum sem hann hefur starfað hjá félaginu hefur það margfaldast í stærð og skilað umtalsverðum verðmætum til viðskiptavina og hluthafa Kviku.

Ármann Þorvaldsson, forstjóri:
Árin hjá Kviku hafa verið eitt allra skemmtilegasta tímabilið í mínu lífi og það hafa verið forréttindi að vinna með þeim frábæra hópi fólks sem byggt hefur upp einstakt félag og náð árangri sem fá fyrirtæki á Íslandi geta státað af.

Ég vil þakka stjórn, stjórnendum og öllu starfsfólki fyrir afburða gott og skemmtilegt samstarf sem ég met mjög mikils og mun minnast með hlýhug alla tíð.

Það hefur mikil áhrif á tímasetningu ákvörðunar minnar að ég tel Kviku sjaldan hafa verið í sterkari stöðu en í dag og hefur alla burði til að halda áfram að vinna að hag viðskiptavina, skila hluthöfum sínum framúrskarandi ávöxtun og á sama tíma að vera einn skemmtilegasti vinnustaður landsins.

Sigurður Hannesson, stjórnarformaður:
Kvika hefur vaxið verulega frá stofnun bankans árið 2015 og er í sterkri stöðu til að sækja fram í þágu viðskiptavina og hluthafa. Ármann á stóran þátt í þeim árangri sem hefur náðst, ásamt öflugum hópi stjórnenda og starfsmanna og fyrir hönd stjórnar vil ég þakka honum fyrir framúrskarandi störf. Stjórn virðir ákvörðun hans um að láta af störfum í lok þessa árs. Engin ákvörðun hefur verið tekin um nýjan forstjóra en stjórn mun nýta tímann til þess að velja eftirmann Ármanns.