Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Bank |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Að undanförnu hefur verið ráðist í hagræðingaraðgerðir hjá Kviku banka sem fela í sér að stöðugildum hjá bankanum hefur fækkað um samtals 18 á árinu. Í dag áttu sér stað 11 sársaukafullar uppsagnir og jafnframt hefur verið tekin ákvörðun um að ráða ekki í stöður sem hafa losnað og munu losna á næstu mánuðum. Fækkun starfsfólks hefur náð til nánast allra eininga bankans.
Þrátt fyrir umtalsverðan vöxt á flestum sviðum bankans kallar breytt og krefjandi umhverfi á stöðugt aðhald í rekstri, sem þessar breytingar endurspegla.
Gert er ráð fyrir að þessi fækkun stöðugilda muni leiða til kostnaðarlækkunar sem nemur tæplega 400 milljónum króna á ársgrundvelli. Einskiptiskostnaður vegna uppsagna nemur rúmlega 100 milljónum króna, sem gjaldfærðar verða á öðrum fjórðungi ársins.