Kvika banki hf.: Niðurstaða frumútboðs sértryggðra skuldabréfa
Kvika banki hf. hélt í dag lokað frumútboð í sértryggða skuldabréfaflokknum KVIKA CB 32. Útboðið fór fram með hollensku fyrirkomulagi og voru heildartilboð í útboðinu 10.120 m.kr. á ávöxtunarkröfu á bilinu 7,59% til 7,85%. Samþykkt tilboð voru 5.920 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 7,74% sem eru vextir skuldabréfsins greiddir árlega. Heildarstærð skuldabréfaflokksins verður 6.420 m.kr., þar af eru 5.920 m.kr. útistandandi og 500 m.kr. til eigin nota.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland 20. október 2026 og er áætlað að viðskiptavakt með skuldabréfin hefjist fyrir lok árs 2026. Skuldabréfin eru gefin út undir sértryggðum skuldabréfaramma Kviku banka.
Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands samkvæmt lögum nr. 11/2008 og reglum Seðlabanka Íslands um sértryggð skuldabréf nr. 190/2023. Nánari upplýsingar um endanlega skilmála, áhættuskýrslur tryggingasafns og skuldabréfaramma sértryggðu skuldabréfanna má finna á vefsvæði Kviku banka - Fjármögnun.
Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu [email protected] eða í síma 540 3200.