Måndag 10 Augusti | 14:20:19 Europe / Stockholm

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Nova Klúbburinn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup Nova Klúbbsins hf. á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

2026-07-27 10:30:00

Í 30. viku 2026 keypti Nova Klúbburinn hf. („Félagið“) 3.400.000 eigin hluti fyrir ISK 13.023.000 eins og hér segir:

DagsetningTími viðskiptaKeyptir hlutir Gengi á hlutKaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
21.7.202612:07900.0003,8403.456.000 13.800.000
22.7.202613:58850.0003,8403.264.000 14.650.000
23.7.202614:51850.0003,8203.247.000 15.500.000
24.7.202611:05800.0003,8203.056.000 16.300.000
 Samtals3.400.000 13.023.000  

Er hér um að ræða kaup Félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun Félagsins sem var hrint í framkvæmd 29. júní 2026, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags  29. júní 2026.

Félagið hefur nú keypt samtals 16.300.000 hluti í Félaginu sem samsvarar 4,73% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals ISK 62.790.600 sem samsvarar 11,42% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Félagið á nú samtals 16.300.000 eigin hluti, eða 0,47% af heildarhlutafé Félagsins sem er 3.447.374.756.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða í kauphöll Nasdaq OMX Iceland hf. að hámarki keyptir  344.737.475 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en ISK 550.000.000. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2027, nema ef skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, og 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, og reglugerð framkvæmdastjórnar 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.