Torsdag 21 Maj | 01:42:05 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2024-03-21 - Årsstämma
2024-02-27 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-25 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-24 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-02 - Kvartalsrapport 2023-Q1

Vem äger bolaget?

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

2026-05-20 18:44:06

Vísað er til tilkynningar Nova klúbbsins hf. frá 20. febrúar 2026 um undirritun samnings um kaup félagsins á öllu hlutafé í Ofar hf. 

Nova klúbbnum hf. hefur borist tilkynning frá Samkeppniseftirlitinu þar sem fram kemur að eftirlitið telji ekki tilefni til frekari rannsóknar eða íhlutunar vegna kaupanna. Samkeppniseftirlitið gerir því ekki athugasemdir við viðskiptin og lýkur þar með meðferð málsins af hálfu eftirlitsins. 

Eins og fram kom í fyrri tilkynningu félagsins nemur heildar virði kaupanna 4,4 ma.kr. Kaupin eru fjármögnuð með nýju lánsfé að fjárhæð 2,8 ma.kr. og handbæru fé að fjárhæð 1,6 ma.kr. Heildartekjur Ofar á árinu 2025 voru um 7,8 ma.kr., EBITDA félagins tæplega 620 m.kr. og rekstrarhagnaður um 360 m.kr. Áætlaður vöxtur Ofar á núverandi ári sem og áætluð jákvæð samlegðaráhrif á EBITDA samstæðu Nova klúbbsins eru samtals um 250 m.kr. á ársgrundvelli, þegar þau eru að fullu komin fram. Þannig verða áætluð heildaráhrif á EBITDA samstæðunnar um 870 m.kr., en gert er ráð fyrir að árlegar fjárfestingar samstæðunnar aukist um 60 m.kr. á ári. Viðskiptin munu þannig styrkja sjóðstreymi samstæðunnar verulega.  

Gert ráð fyrir að lokauppgjör og frágangur viðskiptanna fari fram á næstu vikum, þegar öðrum skilyrðum kaupanna hefur verið fullnægt. Að kaupunum frágengnum mun Ofar hf. teljast hluti af samstæðu Nova klúbbsins hf. frá og með kaupsamningsdegi, 20. febrúar 2026.