Fredag 1 Maj | 15:03:24 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2027-11-05 22:05 Kvartalsrapport 2027-Q3
2027-08-12 22:05 Kvartalsrapport 2027-Q2
2027-05-06 22:05 Kvartalsrapport 2027-Q1
2027-03-02 N/A Bokslutskommuniké 2026
2026-11-05 22:05 Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-08-06 22:05 Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-05-07 22:05 Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-03-03 - Bokslutskommuniké 2025
2025-11-10 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-08-21 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-05-08 - Kvartalsrapport 2025-Q1

Beskrivning

LandSchweiz
ListaMid Cap Iceland
SektorHälsovård
IndustriBioteknik
Oculis Holding är specialiserade inom bioteknik. Bolaget bedriver forskning och utveckling inom topikala behandlingar för ögonsjukdomar. Exempel på specialistområden inkluderar diabetiskt makulaödem, bahandlingar för torra ögon och akut optisk neurit. Störst verksamhet återfinns inom Europa, där forskning bedrivs i egen regi men även via samarbetspartners. Bolaget har sitt huvudkontor i Zug, Schweiz.

Vem äger bolaget?

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

2026-04-21 22:05:00

ZUG, Sviss, April 21, 2026 (GLOBE NEWSWIRE) -- Oculis Holding AG (Nasdaq: OCS; XICE: OCS) (“Oculis”), birti í dag boð á aðalfundinn 2026, sem haldinn verður þann 13. maí 2026 í Ochsen-Zug, Kolinplatz 11, CH-6300 Zug, Sviss, klukkan 10:00 að íslenskum tíma / 6:00 EDT / 12:00 CEST.

Aðalfundurinn 2026 verður staðfundur. Hægt verður að fylgjast með fundinum í gegnum vefstreymi, án möguleika á rafrænni þátttöku, með því að nota eftirfarandi hlekk.

Allar upplýsingar varðandi aðalfundinn 2026, þ.m.t. fundarefni, er hægt að nálgast á vefsvæði Oculis með því að nota eftirfarandi hlekk.

Hluthafar sem eiga hlutabréf á Nasdaq US munu fá send umboðsgögn og atkvæðagreiðsluleiðbeiningar á pappírsformi.

Hluthafar sem eiga hlutabréf á Nasdaq Íslandi munu ekki fá send umboðsgögn á pappírsformi og geta þess í stað sent inn fyrirmæli sín um atkvæðagreiðslu rafrænt í gegnum Lumi AGM Mobile Platform, sem rekið er af Lumi Global. Til að skrá hluthafa til að geta sent fyrirmæli um atkvæðagreiðslu, vinsamlegast notið eftirfarandi hlekk.

Upplýsingafundur hluthafa

Oculis mun halda upplýsingafund fyrir alla hluthafa mánudaginn 11. maí 2026 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík Íslandi, frá kl. 16:00 – 17:00 að íslenskum tíma / 12:00 – 13:00 EDT / 18:00 – 19:00 CEST, þar sem stjórnendur fara yfir tillögurnar sem lagðar verða fyrir aðalfundinn 2026 og svara spurningum hluthafa. Til að mæta á upplýsingafundinn, hvort sem það er í eigin persónu eða rafrænt, vinsamlegast skráið ykkur í gegnum eftirfarandi hlekk. Upptaka af upplýsingafundinum verður aðgengileg að fundi loknum á vefsíðu okkar hér.

Um Oculis

Oculis er alþjóðlegt líftæknifyrirtæki (Nasdaq: OCS; XICE: OCS) með áherslu á nýsköpun sem markar tímamót í því að mæta verulegum óuppfylltum læknisfræðilegum þörfum við meðferð á augn- og augntaugasjúkdómum. Í klínískri þróun hjá Oculis eru þrjú lykilþróunarlyf: OCS-01, augndropar í skráningarrannsóknum sem ætlunin er að verði fyrsta staðbundna meðferðin við sjónhimnubjúg af völdum sykursýki (DME); Licaminlimab, augndropar í skráningarrannsóknum sem innihalda TNF-hamlara og byggjast á notkun erfðamerkis til að þróa einstaklingsmiðaða lyfjameðferð við augnþurrki (DED); og Privosegtor, taugaverndandi byltingarkennt þróunarlyf í PIONEER áætluninni, sem samanstendur af rannsóknum sem er ætlað að styðja við skráningaráætlanir vegna meðferða við sjóntaugakvillum á borð við sjóntaugabólgu (ON) og blóðþurrð í sjóntaug án slagæðabólgu (NAION), en lyfið kann einnig að hafa víðtæka notkunarmöguleika við ýmsum öðrum augntauga- og taugasjúkdómum. Höfuðstöðvar Oculis eru í Sviss og félagið er með starfsstöðvar í Bandaríkjunum og á Íslandi. Stjórnendur Oculis hafa mikla reynslu á sviði lyfjaiðnaðar og hafa náð miklum árangri hver á sínu sviði. Þá standa leiðandi alþjóðlegir fjárfestingarsjóðir á sviði heilbrigðisvísinda að baki félaginu.

Frekari upplýsingar er að finna á www.oculis.com

Tengiliðir hjá Oculis

Sylvia Cheung, fjármálastjóri
[email protected]

Fjárfestatengsl

LifeSci Advisors
Corey Davis, Ph.D.
[email protected]

Almannatengsl
ICR Healthcare
Amber Fennell / David Daley / Sean Leous
[email protected]