Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Handel & varor |
Industri | Dagligvaror |
2025-04-08 20:29:53
Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf. mun birta ársuppgjör félagsins fyrir tímabilið 1. mars 2024 til 28. febrúar 2025, eftir lokun markaða fimmtudaginn 10. apríl 2025.
Kynningarfundur vegna uppgjörsins verður haldinn sama dag, fimmtudaginn 10. apríl 2025 klukkan 16:30. Á fundinum kynna stjórnendur afkomu félagsins og svara spurningum.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði Ölgerðarinnar að Grjóthálsi 7-11, 110 Reykjavík. Fundinum verður einnig streymt í gegnum vefsíðu félagsins, olgerdin.is