Tisdag 25 Augusti | 01:19:33 Europe / Stockholm
Est. tid*
2026-09-16 N/A X-dag halvårsutdelning REITIR 1.6
2026-05-11 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-03-26 - X-dag halvårsutdelning REITIR 2.3
2026-01-26 - Bokslutskommuniké 2025
2025-11-10 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-09-22 - X-dag halvårsutdelning REITIR 1.5
2025-08-21 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-05-12 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-04-03 - X-dag halvårsutdelning REITIR 2.2
2025-04-02 - Årsstämma
2025-01-27 - Bokslutskommuniké 2024
2024-11-11 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-08-26 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-05-13 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-07 - X-dag ordinarie utdelning REITIR 2.05 ISK
2024-03-06 - Årsstämma
2024-02-12 - Bokslutskommuniké 2023
2023-11-13 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-21 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-16 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-02-14 - Bokslutskommuniké 2022
2022-11-15 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-08-23 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-17 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-11 - Årsstämma
2022-02-14 - Bokslutskommuniké 2021
2021-11-15 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-23 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-17 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-11 - Årsstämma
2021-02-15 - Bokslutskommuniké 2020
2020-11-16 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-24 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-05-11 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-03-10 - Årsstämma
2020-02-17 - Bokslutskommuniké 2019
2019-11-18 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-19 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-05-13 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-12 - Årsstämma
2019-02-18 - Bokslutskommuniké 2018
2016-03-17 - X-dag ordinarie utdelning REITIR 1.40 ISK
LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFastigheter
IndustriFörvaltning
Reitir fasteignafélag är ett fastighetsbolag. Bolaget äger, förvaltar och utvecklar ett fastighetsbestånd som huvudsakligen består av kommersiella fastigheter. Bolaget erbjuder fastigheter för kontorslokaler, hotellfastigheter, samt övriga kommersiella fastigheter för företagskunder inom varierande branscher. Verksamheten styrs via flertalet etablerade dotterbolag.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

REITIR: Uppgjör fyrri árshelmings 2026

2026-08-24 17:57:22

Rekstur Reita á fyrri hluta ársins gekk vel og tekjur og rekstrarhagnaður eru umfram áætlanir félagsins. Leigutekjur árshlutans voru 9.884 millj. kr. sem er aukning um 12,7% milli ára eða sem nemur 7,4% umfram verðlag. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu nam 6.593 millj. kr. og jókst þannig um 16,2% og heildarhagnaður var 1.567 millj. kr. Matshækkun fjárfestingareigna á fyrri árshelmingi nam 3.895 millj. kr., heildareignir samstæðunnar voru 268.847 millj. kr. og eigið fé 77.238 millj. kr. í lok júní sl.  

5,4 milljarða króna innri vöxtur 

Innri vöxtur félagsins í uppbyggingar- og þróunarverkefnum er umtalsverður eða 5,4 ma. kr. á fyrri hlut ársins. Stærstu verkefnin eru uppbygging á Hyatt hóteli við Laugaveg, umbreyting skrifstofuhúsnæðis við Nauthólsveg í hjúkrunarheimili og nýframkvæmdir á Korputúni.  

Góður framgangur er í öllum verkefnum félagsins og dreifast þau vel eftir tegund húsnæðis og eru þar á meðal hótel, atvinnurými, íbúðir og hjúkrunarheimili. Nýr leigusamningur við Dranga um 5.500 fm. verslunarrými á Korputúni markaði lykiláfanga í þróun svæðisins sem er meðal umfangsmestu uppbyggingarverkefna félagsins.

Félagið hélt áfram að styrkja verkefnastöðu sína enn frekar með nýjum verkefnum og má þar helst nefna uppbyggingu hjúkrunarheimilis á Akureyri.  

Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita: 

„Fjárfesting í uppbyggingu og sterkur rekstur eru lykilstefin á fyrri árshelmingi þessa árs. Aukning rekstrarhagnaðar um 16,2% og raunvöxtur upp á 7,4% er afar góður árangur og er afrakstur af fjárfestingu undanfarna missera, endurnýjun stórra leigusamninga og stækkun eignasafnsins. Verkefnastaðan heldur áfram að styrkjast og það er afar jákvætt að sjá bæði fyrstu leigutakana koma inn í verkefni sem hafa verið í þróun um nokkurt skeið samhliða því að taka að okkur ný verkefni sem stuðla að aukinni tekjumyndun til lengri tíma.“ 

Lykiltölur uppgjörs fyrri árshelmings 2026: 

Lykiltölur rekstrar2026 1H2025 1H
Leigutekjur9.8848.774
Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna-2.717-2.564
Stjórnunarkostnaður-574-536
Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu6.5935.674
Matsbreyting fjárfestingareigna3.8953.604
Hrein fjármagnsgjöld-8.528-5.651
Hagnaður og heildarhagnaður1.5672.771
Hagnaður á hlut2,34,0
   
Lykiltölur efnahags30.6.202631.12.2025
Fjárfestingareignir262.452252.194
Handbært og bundið fé2.6591.167
Heildareignir268.847256.061
Eigið fé77.23879.099
Vaxtaberandi skuldir134.487132.096
   
Eiginfjárhlutfall28,7%30,9%
Skuldsetningarhlutfall61,2%58,5%
   
Lykilhlutföll2026 1H2025 1H
Virkt nýtingarhlutfall96,7%97,9%
Nýtingarhlutfall allra eigna94,0%94,2%
Arðsemi tekjuberandi eigna5,7%5,4%
Rekstrarhagnaðarhlutfall63,1%61,4%
Rekstrarkostnaðarhlutfall26,0%27,8%
Stjórnunarkostnaðarhlutfall5,5%5,8%


Horfur ársins 

Horfur ársins hafa verið uppfærðar og stjórnendur félagsins gera núna ráð fyrir að leigutekjur ársins verið á bilinu 19.800-20.100 millj. kr. og að rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu nemi 13.200-13.500 millj. kr.  

Að baki hækkun á horfum ársins er verðlagshækkun sem hefur verið kröftugari en upphafleg áætlun gerði ráð fyrir en auk þess hefur rauntekjuvöxtur verið góður.  

Nánari upplýsingar og kynningarfundur 

Kynningarfundur vegna uppgjörsins fer fram í streymi. Þar munu Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, kynna uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn hefst klukkan 8:30 á morgun, þriðjudaginn 25. ágúst á slóðinni: 

https://vimeo.com/event/6127448/embed/f62e2e0437/interaction  

Fjárfestar geta sent spurningar sem óskað er eftir að verði teknar fyrir á fundinum á netfangið [email protected]

Kynningarefni fundarins er aðgengilegt á fjárfestasíðu Reita www.reitir.is/fjarfestar

Um Reiti 

Reitir hf. er íslenskt hlutafélag. Samstæða félagsins samanstendur af móðurfélaginu, Reitum hf., ásamt níu dótturfélögum sem öll eru að fullu í eigu móðurfélagsins. Starfsemi Reita felst í eignarhaldi, útleigu og umsýslu atvinnuhúsnæðis sem að stærstum hluta er verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Þar að auki er félagið virkt í fasteignaþróun. Fasteignir í eigu félagsins eru í dag um 150 talsins, um 490 þúsund fermetrar að stærð. Meðal fasteigna Reita má nefna stærstan hluta verslunarmiðstöðvarinnar Kringlunnar, Spöngina og Holtagarða, Hótel Borg, Hotel Hilton Nordica og Hótel Reykjavík Natura auk skrifstofubygginga við Höfðabakka 9 og að Vínlandsleið ásamt húsnæði Landspítala við Skaftahlíð og Eiríksgötu auk höfuðstöðva Sjóvár og Advania. 

Eigendur eru að stærstum hluta íslenskir lífeyrissjóðir. 

Nánari upplýsingar 

Upplýsingar veita Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, í netfanginu [email protected] eða í síma 575 9000 og 624 0000 eða Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri í netfanginu [email protected] eða í síma 575 9000 og 699 4416.