Onsdag 27 Maj | 21:17:18 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2026-05-11 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-01-26 - Bokslutskommuniké 2025
2025-11-10 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-08-21 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-05-12 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-04-02 - Årsstämma
2025-01-27 - Bokslutskommuniké 2024
2024-11-11 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-08-26 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-05-13 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-06 - Årsstämma
2024-02-12 - Bokslutskommuniké 2023
2023-11-13 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-21 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-16 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-02-14 - Bokslutskommuniké 2022
2022-11-15 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-08-23 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-17 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-11 - Årsstämma
2022-02-14 - Bokslutskommuniké 2021
2021-11-15 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-23 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-17 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-11 - Årsstämma
2021-02-15 - Bokslutskommuniké 2020
2020-11-16 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-24 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-05-11 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-03-10 - Årsstämma
2020-02-17 - Bokslutskommuniké 2019
2019-11-18 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-19 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-05-13 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-12 - Årsstämma
2019-02-18 - Bokslutskommuniké 2018
2016-03-17 - X-dag ordinarie utdelning REITIR 1.40 ISK

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFastigheter
IndustriFörvaltning
Reitir fasteignafélag är ett fastighetsbolag. Bolaget äger, förvaltar och utvecklar ett fastighetsbestånd som huvudsakligen består av kommersiella fastigheter. Bolaget erbjuder fastigheter för kontorslokaler, hotellfastigheter, samt övriga kommersiella fastigheter för företagskunder inom varierande branscher. Verksamheten styrs via flertalet etablerade dotterbolag.

Vem äger bolaget?

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

2026-05-11 17:57:30

Rekstur Reita á fyrsta ársfjórðungi ársins 2026 gekk vel. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu nam 3.212 m. kr. sem er aukning um 411 m. kr. milli ára eða 14,7%. Tekjur á ársfjórðungnum voru 4.811 m. kr. og jukust um 506 m. kr. milli ára eða 11,8%. Vöxturinn er uppskera kröftugrar fjárfestingar á undanförnum tveimur árum í innri verkefnum og nýjum eignum.

Kjarnastarfsemi félagsins í útleigu atvinnuhúsnæðis skilaði góðri afkomu á fyrsta ársfjórðungi og var raunvöxtur leigutekna 7,1% frá fyrra ári. Markviss uppbygging og fjárfesting innan eignasafnsins undanfarin ár er einn helsti þátturinn að baki sterkum tekjuvexti af kjarnastarfseminni og þar má nefna lykilverkefni á borð við uppbyggingu læknamiðstöðvar í Ármúla, endurnýjun skrifstofuhúsnæðis við Suðurlandsbraut 34 og uppfærslu verslana í Holtagörðum. Einnig gengur vel að endurnýja leigusamninga og var meðal annars tilkynnt um að nýr leigusamningur við Íslandshótel vegna hótela við Suðurlandsbraut 2 og Nauthólsveg 52 muni taka gildi 1. september nk. en upprunalega var tilkynnt um nýja leigusamninginn í apríl 2025.

Matsbreyting fjárfestingareigna var talsverð á fjórðungnum eða sem nemur 2.841 m. kr. sem skýrist helst af verðlagsþróun.

Framgangur uppbyggingarverkefna

Félagið fjárfesti fyrir 2,6 ma. kr. í innri verkefnum á fyrsta ársfjórðungi og stærsti hluti þeirrar fjárfestingar er uppbyggingu á Hyatt hóteli við Laugaveg 176, hjúkrunarheimili við Nauthólsveg 50 og verslunarkjarna á D-reit í nýjum atvinnukjarna á Korputúni. Auk þessara verkefna var unnið að fjölda annarra framkvæmda- og endurbótaverkefna innan eignasafnsins.

Áætlað er verkefnin byrji að skila tekjum á næsta ári en auk þeirra hefur félagið fjölbreytt þróunar- og uppbyggingarverkefni í bígerð á ólíkum stigum sem koma til með að stuðla að auknum framtíðartekjum til lengri tíma.

Guðni Aðalsteinsson, forstjóri:

„Árið byrjar af krafti hjá Reitum og fyrstu mánuðir í rekstri einkennast af sterkum tekjuvexti, aukinni arðsemi og stöðugri framvindu lykilverkefna félagsins. Tekjuaukning af óbreyttu eignasafni sem nemur 404 m. kr., eða 9,4%, er til marks um góðan árangur í kjarnastarfsemi félagsins og afrakstur markvissrar uppbyggingar á undanförnum árum. Á sama tíma miðar þróunar- og uppbyggingarverkefnum vel og félagið hefur fjárfest fyrir 2,6 ma. kr. í innri vexti á fyrsta ársfjórðungi. Vel gengur að raungera þann hluta vaxtarstefnu félagsins sem snýr að útvíkkun starfseminnar í nýja eignaflokka. Við tilkynntum um hagkvæma og skilvirka lausn í leikskólahúsnæði á vormánuðum en félagið er einnig með hjúkrunarheimili og íbúðir í skipulags- og framkvæmdarferli auk atvinnuhúsnæðis. Breikkun á starfsemi félagsins leggur grunn að nýjum tekjustoðum til framtíðar sem eru til viðbótar við þá öflugu kjarnastarfsemi sem fer einnig vaxandi.“


Lykiltölur uppgjörsins fyrstu þrjá mánuði ársins:

Lykiltölur rekstrar2026 1F2025 1F
Leigutekjur4.8114.305
Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna-1.323-1.245
Stjórnunarkostnaður-276-259
Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu3.2122.801
Matsbreyting fjárfestingareigna2.8411.139
Hrein fjármagnsgjöld-4.937-2.456
Hagnaður og heildarhagnaður8581.094
Hagnaður á hlut1,31,6
   
Lykiltölur efnahags31.3.202631.12.2025
Fjárfestingareignir257.755252.194
Handbært og bundið fé5911.167
Heildareignir261.065256.061
Eigið fé76.92279.099
Vaxtaberandi skuldir136.133132.096
   
Eiginfjárhlutfall29,5%30,9%
Skuldsetningarhlutfall59,0%58,5%
   
Lykilhlutföll2026 1F2025 1F
Virkt nýtingarhlutfall96,7%98,0%
Nýtingarhlutfall allra eigna94,2%94,1%
Arðsemi tekjuberandi eigna5,7%5,8%
Rekstrarhagnaðarhlutfall62,9%61,2%
Rekstrarkostnaðarhlutfall25,9%27,2%
Stjórnunarkostnaðarhlutfall5,4%5,7%


Horfur ársins

Afkoma fyrsta ársfjórðungs er í samræmi við útgefnar horfur sem eru óbreyttar frá því sem kynnt var við birtingu ársuppgjörs. Áfram er gert ráð fyrir að tekjur ársins nemi 19.600-19.900 m. kr. og rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu verði á bilinu 13.000-13.300 m. kr.

Verðlag síðustu mánuði hefur hækkað meira en gert var ráð fyrir í áætlun og liggja horfur fyrir tekjur og rekstrarhagnað því við efri mörkin á bilinu sem er í gildi fyrir árið 2026.

Nánari upplýsingar og kynningarfundur

Kynningarfundur vegna uppgjörsins fer fram í streymi. Þar munu Guðni Aðalsteinsson, forstjóri og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, kynna uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn hefst klukkan 8:30 á morgun, þriðjudaginn 12. maí, á slóðinni:

https://vimeo.com/event/5923757/embed/c4bf83da8b/interaction

Fjárfestar geta sent spurningar sem óskað er eftir að verði teknar fyrir á fundinum á netfangið [email protected].

Kynningarefni fundarins er aðgengilegt á fjárfestasíðu Reita www.reitir.is/fjarfestar.

Um Reiti

Reitir hf. er íslenskt hlutafélag. Samstæða félagsins samanstendur af móðurfélaginu, Reitum hf., ásamt átta dótturfélögum sem öll eru að fullu í eigu móðurfélagsins. Starfsemi Reita felst í eignarhaldi, útleigu og umsýslu atvinnuhúsnæðis sem að stærstum hluta er verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Þar að auki er félagið virkt í fasteignaþróun og fer með þróun og uppbyggingu ýmissa fasteigna. Fasteignir í eigu félagsins eru í dag um 150 talsins, um 490 þúsund fermetrar að stærð. Meðal fasteigna Reita má nefna stærstan hluta verslunarmiðstöðvarinnar Kringlunnar, Spöngina og Holtagarða, Hótel Borg, Hotel Hilton Nordica og Hótel Reykjavík Natura auk skrifstofubygginga við Höfðabakka 9 og að Vínlandsleið ásamt húsnæði Landspítala við Skaftahlíð og Eiríksgötu auk höfuðstöðva Sjóvár, Origo og Advania.

Eigendur eru að stærstum hluta íslenskir lífeyrissjóðir.

Nánari upplýsingar

Upplýsingar veita Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, í netfanginu [email protected] eða í síma 575 9000 og 624 0000 eða Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri í netfanginu [email protected] eða í síma 575 9000 og 699 4416.